Trommarinn Travis Barker opnaði dyrnar að heimili sínu í Calabasas í Kaliforníu fyrir Architectural Digest.
Travis deilir heimilinu með fjölskyldu sinni. Hann og raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian eru nýgift en ekki formlega flutt inn saman, en búa þó mjög stutt frá hvort öðru. Þau verja miklum tíma saman á heimili hans, ásamt börnum þeirra. Travis á þrjú börn úr fyrra sambandi og Kourtney þrjú, þannig það þarf að vera nóg pláss fyrir alla.
Heimili hans er bjart og fallegt, hann hefur verið þar í fimmtán ár en tók það nýlega í gegn með aðstoð innanhúshannaðarins Waldo Fernandez.
Horfðu á myndbandið hér að neðan.