Hin bandaríska Taylor Nicole segir frá því hvernig hún komst að framhjáhaldi kærasta síns þegar hún fór í gegnum símann hans á meðan hann svaf.
„Ég var að fara í gegnum skilaboðin hans um miðja nótt, fann mynd af honum þiggja munnmök frá annarri stelpu, þannig ég setti myndina sem bakgrunnsmynd (e. lock screen) á símanum og fór aftur að sofa,“ segir hún í myndbandi á TikTok.
Myndbandið hefur fengið yfir fjórar milljónir í áhorf á tveimur dögum og tæplega 900 þúsund „likes“.
„Ég var í sambandi með narsissista,“ segir hún í öðru myndbandi þar sem útskýrir betur hvað gerðist.
Taylor segir að hún hefði heyrt það frá nokkrum að kærasti hennar hefði þegið munnmök frá annarri konu. Hún spurði kærastann út í það og hann harðneitaði og sagði að hún væri með enga sönnun fyrir því.
„Ég vildi trúa honum, ég trúði honum. Hann var kærasti minn,“ segir hún.
En eina nóttina ákvað Taylor að fara í gegnum símann hans og fann þar mynd sem vinur hans hafði sent honum, en á myndinni er kona að gefa honum munnmök.
„Vinur hans tók myndina á meðan þetta var í gangi og sendi honum svo myndina. Ég setti myndina sem bakgrunnsmynd á símanum hans og fór síðan að sofa.“
Taylor útskýrir að hún hefði ákveðið að fara aftur að sofa því klukkan var þrjú um nóttina og hún hafði áður reynt að ræða um svipuð mál við hann á þessum tíma og það hefði alltaf endað eins.
„Ég endaði með að vekja hann snemma um morguninn og sagði: „Flottur bakgrunnur á símanum þínum.“ Hann sagði eitthvað leiðinlegt við mig og fór aftur að sofa. Ég endaði með að vera með honum í eitt og hálft ár eftir þetta. Við keyptum hund saman og fluttum inn saman, og ástandið skánaði ekkert,“ segir hún. „Þeir segjast ætla að breytast en gera það ekki.“
Horfðu á myndbandið hér að neðan þar sem hún segir betur frá sambandinu og hvernig það er að vera í sambandi með narsissista.
@taylor_6793The story time♬ original sound – Taylor