fbpx
Þriðjudagur 22.júlí 2025
Fókus

Greta Salóme tók bústaðinn í gegn – Ótrúlegar „fyrir og eftir“ myndir

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 4. janúar 2021 14:30

Greta Salóme tók bústaðinn í gegn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Greta Salóme Stefánsdóttir söngkona og unnusti hennar, Elvar Þór Karlsson, keyptu sér sumarbústað árið 2016. Þau gerðu hann upp í ár og eins og sést á meðfylgjandi myndum tóku þau hann gjörsamlega í nefið.

Bústaðurinn er við Laugarvatn og mætti segja að hann hafi verið draumabústaður Gretu. Foreldrar hennar eiga bústaðinn við hliðina á og eyddi Greta stórum hluta æskunnar þar.

„Við vorum öll sumur hérna og ég á svo margar góðar minningar. Ég mundi alltaf eftir þessum bústað, mér hefur alltaf þótt hann flottur og alltaf langað til að eiga hann. Árið 2016 var bústaðurinn settur á sölu og við eiginlega stukkum á hann. Systir mín á bústaðinn við hliðina á okkur, þannig við fjölskyldan erum öll í röð,“ segir Greta.

Fyrir.
Eftir.

Breytingar í kófinu

Greta og Elvar nýttu tækifærið á meðan Greta var ekki að túra tuttugu daga mánaðarins vegna kórónuveirufaraldursins og byrjuðu í framkvæmdum.

„Við fórum í framkvæmdir beint eftir páska. Ef ég hefði vitað hvað þetta væri ógeðslega mikil vinna þá hefði ég örugglega aldrei byrjað á þessu,“ segir Greta hlæjandi og bætir við:

„Þetta er samt búið að vera svo ótrúlega skemmtilegt og geggjað verkefni.“

Fyrir.
Eftir.

Allur bústaðurinn var málaður hvítur frá toppi til táar og var það gríðarlega mikil vinna. „Ég myndi ekki óska mínum versta óvini að gera þetta,“ segir hún og hlær.

Eldhúsinnréttinginn fékk nýtt líf, hún var spreyjuð og nýjar höldur voru settar á skápana.

Eftir.

Til leigu

Greta hefur auglýst bústaðinn til leigu og geta áhugasamir lesið nánar um bústaðinn á Facebook-síðu Gretu og sent tölvupóst á konungsvegur@gmail.com

Greta segir að viðbrögðin hafa verið ótrúleg og síminn hafi varlað stoppað.

Sjáðu fleiri myndir hér að neðan.

Fyrir

Fyrir.
Fyrir.
Fyrir.
Fyrir.
Fyrir.

Eftir

Eftir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Robbie Williams berskjaldaði sig á sviði varðandi fjölskylduvandamálin – „Hún veit ekki hver ég er lengur“

Robbie Williams berskjaldaði sig á sviði varðandi fjölskylduvandamálin – „Hún veit ekki hver ég er lengur“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Forstjóri Astronomer settur í leyfi eftir Coldplay-hneykslið

Forstjóri Astronomer settur í leyfi eftir Coldplay-hneykslið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fær nálgunarbann eftir að hafa sakað eiginmanninn um ofbeldi – Harka færist í skilnaðinn

Fær nálgunarbann eftir að hafa sakað eiginmanninn um ofbeldi – Harka færist í skilnaðinn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kornið sem fyllti mælinn og gerði út um vináttu Gwyneth Paltrow og Madonnu

Kornið sem fyllti mælinn og gerði út um vináttu Gwyneth Paltrow og Madonnu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir frá leyndarmálinu við að taka fallegar bikinímyndir

Segir frá leyndarmálinu við að taka fallegar bikinímyndir
Fókus
Fyrir 6 dögum

Gaf fyrrverandi gömlu brjóstapúðana sem DIY-afmælisgjöf

Gaf fyrrverandi gömlu brjóstapúðana sem DIY-afmælisgjöf
Fókus
Fyrir 1 viku

Jessica náði sér í Marvel-stjörnu sem er 11 árum yngri

Jessica náði sér í Marvel-stjörnu sem er 11 árum yngri
Fókus
Fyrir 1 viku

Steikti egg á húddinu í ótrúlegum hita á Suðurlandi – „Bragðaðist svona líka dásamlega hérna í blíðunni í Hveragerði“

Steikti egg á húddinu í ótrúlegum hita á Suðurlandi – „Bragðaðist svona líka dásamlega hérna í blíðunni í Hveragerði“