fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fókus

Agnar ráðinn deildarstjóri hjá Birtingahúsinu

Fókus
Fimmtudaginn 30. september 2021 14:22

Agnar Freyr Gunnarsson. Mynd: Birtingahúsið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Agnar Freyr Gunnarsson hefur verið ráðinn deildarstjóri netmarkaðsmála hjá Birtingahúsinu.

Hann kom til starfa snemma árs 2020 og hefur verið að sinna viðskiptaþróun og markaðssetningu á samfélagsmiðlum ásamt annarri netráðgjöf fyrir viðskiptavini félagsins.

Agnar starfaði áður sem netmarkaðssérfræðingur hjá VERT markaðsstofu. Þar áður starfaði hann sem markaðsstjóri Dýrheima sf.

„Agnar hefur komið öflugur inn í okkar hóp og tekur nú við meiri ábyrgð er snýr að framgangi netmarkaðssviðsins, ásamt öðru frábæru starfsfólki. Verkefnum og viðskiptavinum hefur verið að fjölga, bæði á innlendum og erlendum mörkuðum. Slíkt hefur kallað á fjölgun í starfsliði, breytta verkferla og nálganir.
Stutt er síðan að Ólafur Jónsson bættist í teymið og í fyrra flutti Frosti Jónsson til Bandaríkjanna og er þar með starfsstöð sem hefur reynst okkur vel.
Það eru virkilega spennandi og skemmtilegir tímar framundan“, segir Hugi Sævarsson, framkvæmdastjóri Birtingahússins.

„Birtingahúsið er að vinna með mörgum af þekktustu vörumerkjum landsins og það er frábært að starfa í metnaðarfullu og hvetjandi umhverfi. Ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi framþróun og sóknarfærum fyrir okkar viðskiptavini. Við höfum verið að þróa og innleiða spennandi nýjungar og lausnir sem efla starf okkar viðsemjenda enn frekar, ekki síst er kemur að stafrænum þáttum markaðsmála“, segir Agnar Freyr Gunnarsson.

Birtingahúsið var stofnað árið 2000 og veitir faglega og óháða ráðgjöf um auglýsingabirtingar, markaðssetningu og uppbyggingu auglýsingaherferða.

Félagið er í nánu alþjóðlegu samstarfi við Dentsu Aegis Network, sem hefur yfir að ráða einu allra stærsta og öflugasta neti markaðs- og birtingaráðgjafar í heiminum, með starfsemi á yfir 140 markaðssvæðum. Meðal dótturfélaga DAN eru Carat, Vizeum og iProspect.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí
Fókus
Fyrir 3 dögum

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“