22 ára indónesískur áhrifavaldur hefur verið handtekinn á Balí fyrir að meinta sjálfsfróun í beinu streymi á netinu Áhrifavaldurinn er ákærður fyrir klámfengið hátterni sem lögregla segir að felist í því að hafa streymt beint frá „klúrum athöfnum“ á samfélagsmiðum gegn gjaldi.
Áhrifavaldurinn, sem er kona, er talin hafa notast við samfélagsmiðilinn Mango Live síðustu níu mánuði og rukkað þar áhorfendur um gjald til að horfa á beint streymi af henni nakinni að stunda sjálfsfróun. Talið er að hún hafi þénað um 260 þúsund af háttseminni, eða um 15 þúsund fyrir hvert streymi .
Konan var umsvifalaust handtekinn af lögreglu þegar þeim var gert viðvart um háttsemina. Þúsundir fylgjenda konunnar horfðu á hvert streymi, en talið er að margir þeirra gætu verið of ungir að aldri til að mega nota samfélagsmiðilinn.
Konan hefur verið kærð fyrri brot gegn ýmsum lögum, meðal annars þeim er banna sýningu á klámi og eins gegn upplýsingalögum. Viðurlög við brotinu gætu numið allt að 12 ára fangelsi.