Sky Brown varð 13 ára fyrir tæpum mánuði síðan og í morgun vann hún til bronsverðlauna í hjólabretti á Ólympíuleikunum í Tókýó. Sky keppir fyrir hönd Bretlands en faðir hennar er þaðan og móðir hennar frá Japan.
Sky er ekki með þjálfara heldur hefur hún lært hjólabrettalistina í gegnum YouTube en leið hennar á Ólympíuleikana hefur verið þyrnum stráð.
View this post on Instagram
Faðir Sky var mikið á hjólabretti á sínum yngri árum en var ekki alltof mikill aðdáandi þess að dóttirin fetaði í fótspor hans. Í garðinum þeirra hafði hann byggt hjólabrettapall fyrir sig og byrjaði Sky að renna sér á honum þegar hún var aðeins þriggja ára gömul.
Þegar hún var 10 ára gömul varð hún að yngsta atvinnuhjólbrettakappa sögunnar en hún fór að keppa á mótum þegar hún var aðeins átta ára gömul.
Í fyrra lenti Sky í alvarlegu slysi þegar hún datt af bretti sínu og braut á sér höfuðkúpuna, hendina og úlnliðinn. Að sögn föður hennar var hún heppinn að vera á lífi eftir slysið. Hún gafst þó ekki upp og var staðráðin í því að komast á leikana. Henni tókst það að sjálfsögðu og nældi sér í bronsið.
View this post on Instagram
Sky er ekki einungis sigursæl í hjólabrettaheiminum þar sem hún hefur einnig unnið raunveruleikaþáttinn Dancing with the Stars: Junior. Hún keppti í honum árið 2018 og sigraði ásamt dansaranum JT Church.