fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Fókus

Kristín Péturs vaknaði við ófagra sjón – „Mjög óþægilegt að einhver sé með hendurnar í mínu persónulega lífi“

Jón Þór Stefánsson
Mánudaginn 12. júlí 2021 12:10

mynd/samsett DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brotist hefur verið inn á Instagram-reikning Kristínar Pétursdóttur, áhrifavalds og leikkonu. Aðgangurinn hennar er nú óaðgengilegur, en hún naut mikilla vinsælda á miðlinum.

Í samtali við DV segir Kristín að hún hafi vaknað við ófagra sjón: „Ég vaknaði bara og kíkti í símann og þá sá ég allt í einu að Instagram-reikningurinn minn var disabled,“ segir hún og bætir við að henni hafi staðið til boða að tilkynna málið, sem hún gerði.

Svo virðist sem þessir sömu óprúttnu aðilar hafi brotist inn og lokað reikningum hjá öðrum íslenskum konum. Kristín segir að tölvuþrjótarnir hafi reynt að fjárkúga þær, en hún hafi sjálf ekki lent í því enn sem komið er.

Sá sem stjórnar nú aðgangi hennar býr nú til nýja hópa í sífellu og býður mörgum notendum að vera í þeim. Kristín biðlar til þeirra sem er boðið í þessa hópa að tilkynna aðganginn.

„Mjög óþægilegt að einhver sé með hendurnar í mínu persónulega lífi“

„Ég er bara í rusli yfir þessu,“ segir Kristín, sem upplifir Instagram sem stóran hluta af lífi sínu. „Það er mjög óþægilegt að einhver sé með hendurnar í mínu persónulega lífi,“ Hún bendir á að á reikningi hennar megi finna mikilvægar minningar, líkt og ljósmyndir eða skilaboð og samskipti. Þær gætu nú verið glataðar.

Svo virðist vera sem tölvuþrjótarnir séu erlendir, en með því að nota þýðingarforrit hefur Kristín komist að því að þeir tala tyrknesku. Hún er ekki viss um hvert markmiðið er með því að brjótast inn á reikningana, en þeir virðast gorta sig af verkum sínum á Instagram. Þó býst hún við því að þeir muni reyna að fjárkúga hana, þó það hafi ekki gerst enn þá.

Kristín og hinar konunnar vinna nú saman að því að ná aftur stjórn á aðgöngum sínum. Hún segir að fólk sem viti hvernig eigi að koma sér úr klandri sem þessu megi endilega hafa samband til að hjálpa henni, en hún hefur nú þegar rætt við fólk sem hefur lent í svipuðum aðstæðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Framboð Viktors gilt
Fókus
Í gær

,,Þetta var komið gott eftir líflátshótanir”

,,Þetta var komið gott eftir líflátshótanir”
Fókus
Í gær

Helgi Seljan og pabbabrandarinn sem endaði á prenti

Helgi Seljan og pabbabrandarinn sem endaði á prenti
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Um tíma átti ég erfitt með að kaupa mér maskara því ég eyddi svo miklum pening í maníu“

„Um tíma átti ég erfitt með að kaupa mér maskara því ég eyddi svo miklum pening í maníu“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Móeiður og Hörður héldu glæsilegt barnaafmæli í anda Kardashian-fjölskyldunnar

Móeiður og Hörður héldu glæsilegt barnaafmæli í anda Kardashian-fjölskyldunnar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Elizabeth Hurley afhjúpar leyndarmálið að unglegu útliti

Elizabeth Hurley afhjúpar leyndarmálið að unglegu útliti
Fókus
Fyrir 3 dögum

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – „Maður fer all inn á brókinni fyrir vinkonu sína“

Vikan á Instagram – „Maður fer all inn á brókinni fyrir vinkonu sína“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Guðrún byrjaði með manni í fangelsi og varð ólétt eftir hann – „Ég vissi ekki fyrir hvað hann sat inni“

Guðrún byrjaði með manni í fangelsi og varð ólétt eftir hann – „Ég vissi ekki fyrir hvað hann sat inni“