Oceane El Himer, frönsk fyrirsæta og áhrifavaldur, hefur orðið fyrir miklu aðkasti eftir færslu sem hún birti á Instagram-síðu sinni í síðustu viku. Oceane er ansi vinsæl á miðlinum en rúmlega 847 þúsund manns fylgja henni þar.
Um er að ræða mynd sem tekin var í fyrsta farrými í flugvél frá Emirates flugfélaginu. „Næsta stopp – Mónakó. Ég flýg í alla nótt,“ skrifaði hún með myndinni sem rúmlega 100 þúsund manns líkuðu við.
Stuttu seinna var þó önnur mynd birt á samfélagsmiðlinum Twitter þar sem sjá mátti fyrirsætuna sitja í þröngu sæti hins almenna borgara. Oceane er á þeirri mynd í nákvæmlega sömu fötum og á myndinni sem hún birti sjálf, þessari sem tekin var í fyrsta farrými.
It’s actually a mental illness pic.twitter.com/XYwvZtJ62l
— Kev-Prince Kombi (@KevKombi) June 1, 2021
„Fyrirsæta afhjúpuð af öðrum farþegum eftir að hún tók myndir á fyrsta farrými, birti þær á netinu og fór svo aftur í sætið sitt á venjulega farrýminu fyrir flugtak,“ segir með myndinni sem birt var á Twitter. „Klikkað hvað fólk gengur langar leiðir til að heilla fólk sem það þekkir ekki, fólk sem tengist þeirra lífi ekkert,“ segir svo í einni athugasemd um málið á Twitter.
Oceane hefur nú tjáð sig um málið en hún gerði það á samfélagsmiðlinum Snapchat. „Engin skömm í að ferðast á venjulegu farrými,“ segir hún. „Ég er ekki þannig týpa af stelpu sem vill sýna peninginn sinn…“