Fjölmargir þekktir einstaklingar hafa sýnt tónlistarmanninum Bubba Morthens samstöðu á Facebook síðasta sólarhring vegna sögufölsunar sem Borgarleikhúsið hefur verið sakað um eftir að hafa fjarlægt sígarettu af kynningarefni fyrir söngleikinn Níu líf, sem byggir á lífi Bubba.
Á upphaflegri mynd sem notuð hefur verið til kynningar er Bubbi með sígarettu, en sökum kvartana hefur sígarettan nú verið fjarlægð. Mörgum þótti þarna vera um sögufölsun að ræða þar sem ekkert leyndarmál er að Bubbi reykti á árum áður.
Margir hafa því tekið sig til og sýnt samstöðu, flestir með því að deila myndum af sér sjálfum með sígarettur og merkja færslurnnar „Je suis Bubbi“ eða á íslensku „Ég er Bubbi“
Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann deildi mynd og segir „Minn Bubbi“
Ólafur Teitur Guðnason, aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, birti líka mynd. „Je suis Bubbi.“
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Brynjar Níelsson, sýndi líka samstöðu, eða mögulega ekki. Lesa þarf færsluna hans tvisvar og mynda sér því næst skoðun.
Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokksins, taldi ljóst að Borgarleikhúsið myndi skila sígarettunni aftur á kynningarefnið og biðjast afsökunnar.
Eiríkur Jónsson, fjölmiðlamaður birti mynd af sjálfum sér.
Kristinn R. Ólafsson, leiðsögumaður og rithöfundur birti einnig mynd.
Sigtryggur Ari Jóhannsson, ljósmyndari deildi þessari frábæru mynd.
Óttarr Proppé, bóksali og tónlistamaður, tók líka þátt.
Kvikmyndagerðakonan og leikkonan Elsa G. Björnsdóttir sýndi líka samstöðu
Karl Sigurðsson, tónlistamaður, lét sig ekki vanta.
Íris Björk Tanya Jónsdóttir, eigandi Vera design tók líka þátt.
Viðar Eggertsson, leikstjóri, deildi þessari skemmtilegu auglýsingu
Sara Oskarsson, listakona og varaþingmaður Pírata, fannst ritskoðun á list með þeim hætti sem Borgarleikhúsið gerði vera slæm og óþolandi.
Svavar Hávarðsson, ritstjóri Fiskifrétta, nýtti tækifæri og varaði við því að reykja á meðan maður plokkar.
Flosi Þorgeirsson, gítarleikari og sagnfræðingur vildi ekki vera útundan
Erling Jóhannesson, leikari og gullsmiður, vildi vera með. Reyndar ekki hefðbundin sígarettumynd þar á ferð.
Guðmundur Karl Sigurdórsson, eigandi sunnlenska.is og leikari, er líka Bubbi.
Atli Bergmann, sölumaður, segir sögufölsun til syndanna.
Guðmundur Óskar Guðmundsson, bassaleikari Hjaltalín, tók þátt.
Eyþór Gunnarsson, tónlistarmaður, var einnig með.
Guðrún Tryggvadóttir, listakona, hvatti fólk til að deila sígómyndum.
Sigurþór Hallbjörnsson, ljósmyndari er líka Bubbi.