Það hefur þegar komið fram að þríeykinu í framvarðasveit sóttvarnaráðs er ýmislegt til lista lagt. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur til skamms tíma verið í hljómsveit sem leikur ábreiður af gömlum bítlalögum. En Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn á líka tónlistarferil að baki. Á níunda áratugnum var hann í pönkhljómsveitinni Holskeflu – eða hvað?
Vefur Borgarbókasafnsins greinir frá og birti meðfylgjandi mynd. Þar segir:
„Við tiltekt í Tón- og mynddeild í Grófinni kom þessi fordæmalausa vínylplata í leitirnar! Hvern hefði grunað að sjálfur Víðir Reynisson yfirlögregluþjónnhafi verið í pönkhljómsveit snemma á níunda áratugnum? Söfnin eru því miður enn lokuð, en við gátum ekki stillt okkur og færðum plötuna yfir á stafrænt form, enda verulegt fágæti hér á ferð.“
Víðir er lengst til hægri á plötumslaginu. Eða hvað? Borgarbókasafnið greindi frá því gær, reyndar ansi mörgum dögum eftir 1. apríl að fréttin var í raun gabb sem gleymdist að leiðrétta. Það skyldi þó engan undra að Víðir hefði leynda hæfileika en pönksöngur er það þó ekki.