Fyrsta kitlan er lent fyrir níundu kvikmynd leikstjórans Quentin Tarantino, Once Upon a Time in Hollywood, en þar sjást stórleikararnir Leonardo DiCaprio og Brad Pitt í góðum gír.
Myndin segir nokkrar bransasögur af lífi fræga fólksins í Los Angeles árið 1969. Hermt er að nálgunin verði með ekki ósvipuðu sniði Pulp Fiction að því leyti hvernig ólíkar sögur tvinnast saman. Á annan veg mun myndin að hluta til fjalla um morðið á leikkonunni Sharon Tate (leikin af Margot Robbie) ásamt seinni ár leikarans Rick Dalton (DiCaprio) og sögur af sambandi hans við áhættuleikara sinn, Cliff Booth (Pitt). Þess ber að geta að Booth sést í slagsmálum við engan annan en Bruce Lee (leikinn af Mike Moh) og verður fróðlegt að sjá framvinduna á því.
Myndin notast við margar sannar bransasögur og ýktar af tímum í Hollywood þegar iðnaðurinn tók við miklum stakkaskiptum. Dalton og Booth eru annars vegar skáldaðar persónur.
Tarantino hefur áður sagt að hann ætli ekki að gera fleiri kvikmyndir þegar hann hefur náð tíu. Því má segja að ríkir mikil eftirvænting fyrir þeirri næstsíðustu, sem er frumsýnd í byrjun ágúst – en á þessu ári eru liðin 50 ár frá Manson-morðunum. Myndin er sögð vera stærsta mynd Tarantinos til þessa hvað umfang varðar, framleiðslukostnað og ekki síst úrval leikara.
Með önnur hlutverk í myndinni fara Timothy Olyphant, Margot Robbie, Al Pacino, Bruce Dern, Kurt Russell, Dakota Fanning, Emile Hirsch, Tim Roth, Michael Madsen, Damian Lewis, Zoë Bell, Clifton Collins Jr., Scoot McNairy, Rumer (dóttir Bruce) Willis og Luke Perry heitinn. Þetta verður þá síðasta kvikmynd leikarans síðarnefnda, en hann lést þann 4. mars á þessu ári.
Sýnishornið má sjá að neðan.