Leikkonan Lena Headey, sem leikur Cersei Lannister í Game of Thrones, fékk sér í glas fyrir stuttu og gerði svolítið sem er alveg bannað. Hún kjaftaði því hvernig síðasta serían af Game of Thrones endar.
„Ég held að ég hafi gert það í ölæði og sagt einhverjum það. Næsta dag hafði ég uppi á manneskjunni og neyddi hana til að skrifa upp á það með blóði að hún myndi ekki segja frá,“ segir Lena í samtali við Entertainment Tonight.
Næsta, og jafnframt síðasta, serían af Game of Thrones verður frumsýnd 14. apríl næstkomandi, en leiða má líkur að því að hún endi ekki vel fyrir Cersei. Einhverjir aðdáendur telja að hún eigi ekki eftir að lifa seríuna af þar sem hún hafi brennt svo margar brýr að baki sér. Eini sem stendur með henni er bróðir hennar Jaime.