Rapparinn Floni, Friðrik Róbertsson, gaf í gær út nýja plötu, sem heitir einfaldlega Floni 2.
https://www.instagram.com/p/BsnWKehAnWt/?utm_source=ig_web_copy_link
Ekkert laganna hefur verið gefið út áður. Platan var tekin upp í 101derland, Young Nazareth sá um hljóðblöndun og Glenn Schick um hljóðjöfnun. Jóhann Kristófer Stefánsson og Kjartan Hreinsson hönnuðu plötuumslagið og Magnús Andersen tók ljósmynd þess.