Benedikt Friðbjörnsson, 14 ára gamall B-landsliðsmaður á snjóbrettum, sigraði á alþjóðlegu móti í Austurríki í gær. Keppt var í Slopestyle og fór keppnin fram í Saalbach, Austurríki.
Benedikt verður 15 ára á árinu og keppti í unglingaflokki þar sem hann sigraði. Hann keppti einnig í opnum fullorðinsflokki sem hann sigraði líka þrátt fyrir að keppa við marga mun eldri keppendur.
Úrslit úr mótinu má sjá hér. Endanleg úrslit með stigum koma svo inn hér.