Fyrr í þessum mánuði hóf verslun Costco í Kauptúni sölu á risa kónguló sem vakið hefur verðskuldaða athygli. Kóngulóin sem getur bæði hreyft sig og gefið frá sér hljóð er gríðarlega stór. Svo stór að margir viðskiptavinir verslunarinnar hafa hreinlega orðið hræddir. Í Facebook-hópnum Keypt í Costco Ísl.- Myndir og verð hafa skapast heitar umræður um skepnuna.
„Er fólk gengið af göflunum???,“ segir einn meðlimur hópsins er kóngulóin kostar að sögn notenda tæplega 40 þúsund krónur.
Annar notandi síðunnar ætlar að sniðganga verslunina á meðan kóngulóin er til sölu. „Takk fyrir þessa mynd- ég fer ekki í Costco fyrr en hún er farin.“
Ekki eru allir ósáttir við kóngulónna. „Dauð langar í hana en nú þegar tekur halloween skrautið meira pláss í geymslunni en jóla dótið,“ skrifar einn notandi.