Búist er við tæplega hundrað gestum sem mæta til að hlýða á þrettán erindi sem eru að mestu í höndum íslenskra ljósmæðra, en sérstakur heiðursgestur verður Dr. Elizabeth Newman, dósent frá Trinity College og University of Dublin.
Um kvöldið verður hátíðarkvöldverður og skemmtun á Hótel KEA.
Þá er gaman að geta þess að í tengslum við afmælið, hafa ljósmæður SAK sett upp magnaða ljósmyndasýningu, sem sýnir störf þessara kvenna sýningin verður á 3.hæð spítalans, beint fyrir framan fæðingardeildina. Hér má sjá dæmi um nokkrar myndir en þær eru vægast sagt magnaðar enda varla til merkilegri viðburður en þessi í lífi hverrar manneskju.
Ráðstefnustjóri verður Dr. Sigfríður Inga Karlsdóttir en meðal þess sem fjallað verður um eru viðhorf og gagnsemi fyrir og eftir innleiðingu á fæðingardeildum, meðganga og fæðing kvenna með sálræna vanlíðan, stuðningur og fræðsla um brjóstagjöf og áhrif gangsetningar á útkomu fæðinga svo fátt eitt sé nefnt.