fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Eyjan
Laugardaginn 21. febrúar 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vandamál bráðamóttökunnar í Fossvogi eru reglulega til umræðu. Starfsfólk mætir í viðtöl og lýsir hamfaraástandi á spítalanum. Sjúklingar kúldrast í bílageymslum og krókum og kimum. Biðtíminn er endalaus. Nýlega kom upp berklasmit meðal starfsmanna. Alvarlegir og örþreyttir læknar segjast vera að niðurlotum komnir. Lýst er viðvarandi neyðarástandi. Þessar dramatísku lýsingar minna á fréttaflutning frá Gasaströndinni þegar átökin stóðu sem hæst. Stjórnmálamenn vísa hver á annan og leita að rótum vandans. Allir eru þó sammála um það að þessar hamfarir í heilbrigðiskerfinu séu ellilífeyrisþegum að kenna.

Gamalt fólk er dýrt í rekstri og er hægt og bítandi að að setja heilbrigðiskerfið og samfélagið í gjaldþrot. Öll vandamál Landspítalans stafa af gamalmennum sem teppa deildir spítalans. Ráðamenn spítalans vísa til þessa fólks sem „fráflæðisvanda“ sem svipar til orðavals verkfræðinga í umræðu um virkjunarmál.

Eldri borgarar þurfa að átta sig á því að öll samfélagsmein eru þeim að kenna. Þeir stöðva allt eðlilegt flæði í gangverkinu, teppa sjúkrarúm, eru fyrir í umferðinni, geta ekki lært á sjálfsafgreiðsluna í Bónus, kunna ekki á rafræn skilríki og leggja undir sig bestu sólbekkina á Tene. Sumir búa í allt of stórum húsum og auka þannig á húsnæðisvanda hælisleitenda og barnafjölskyldna. Margir eldri borgarar aka um á nagladekkjum og stuðla að svifmengun. Fyrir þetta allt eiga þessir gamlingjar að skammast sín.

Einfaldast er að ráðast gegn rótum vandans með því að fækka í hópi aldraðra á spítalanum. Margar leiðir eru færar eins og virk dánaraðstoð í samráði við nánustu ættingja. Auk þess mætti efna til skemmtilegs og nýstárlegs happdrættis eða bingós meðal inniliggjandi gamlingja. Aðalvinningur væri blásýrutafla og vegleg útför á vegum ríkisins. Vinningshafar fengju viku til að taka töfluna svo að önnum kafnir aðstandendur hefðu tíma fyrir stutta kveðjustund. Þegar þessar alvöru aðferðir til grisjunar spyrjast út hættir gamalt fólk að leita til spítalans. Stjórnmálamenn geta því breytt neyðarástandinu á Bráðamóttökunni í einni svipan með róttækum aðferðum til að losa um fráflæðisstífluna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Leiðin úr flokki A í flokk A+

Þorsteinn Pálsson skrifar: Leiðin úr flokki A í flokk A+
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Meinið, meðulin og hliðarverkanir þeirra

Þorsteinn Pálsson skrifar: Meinið, meðulin og hliðarverkanir þeirra
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Evrópubölsýnin

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Evrópubölsýnin
EyjanFastir pennar
31.01.2026

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn
EyjanFastir pennar
30.01.2026

Nína Richter skrifar: Vá hvað ég er sæt

Nína Richter skrifar: Vá hvað ég er sæt