fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
EyjanFastir pennar

Svarthöfði skrifar: Jóladagatal Miðflokksins

Svarthöfði
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um fátt hefur verið rætt meir í þeim kreðsum sem Svarthöfði tilheyrir en hverjir verði eiginlega frambjóðendur Miðflokksins í borginni. Það segir sig enda sjálft að þegar flokkurinn er á slíku skriði sem raun ber vitni, hljóti það að vera á við meðal vinningspott í Lottóinu að fá sæti á listanum. Að ekki sé nú minnst á hversu mikilvægt það er að fá Miðflokkinn í þjónustu borgarbúa. Sumir í þessum kreðsum Svarthöfða virðast jafnvel trúa að Miðflokkurinn fái hreinan meirihluta í borginni.

Ekki minnkaði nú spenningurinn fyrir listanum þegar kyndilberi flokksins var kynntur sem sá sem myndi setja hann saman.

Svarthöfða finnst nú of langt seilst að líkja Miðflokknum við afmælishátíð frelsarans en sér þó óneitanlega nokkur líkindi með jólunum og að listinn verði gerður opinber.

Snjallir markaðsmenn fortíðarinnar fundu upp á þeirri lausn fyrir þau börn sem erfitt áttu með að bíða jólanna og þreyttu foreldra sína með látlausum spurningum um hvenær jólin kæmu eiginlega, að kynna til sögunnar jóladagatal. Þá lá fyrir á hverjum morgni hversu langt væri til jóla og því fylgdi gjarna sætur súkkulaðibiti, svona til að keyra daginn í gang og blóðsykurinn upp þar með. Svolítil jól á hverjum degi desember.

Það gladdi Svarthöfða óseigjanlega í biðinni eftir framboðslista Miðflokksins en engan endi ætlaði að taka, að Miðflokkurinn fer sömu leið. Nefnilega að kynna til sögunnar einn frambjóðanda á dag. Jóladagatal Miðflokksins.

Þannig tryggir flokkurinn eftirvæntingu og spennu á hverjum degi og margir endurhlaða internetinu í sífelldri eftirvæntingu eftir að frambjóðandi dagsins líti ljósið.

Það eina sem Svarthöfða sýnist að vanti er sæti bitinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Vá hvað ég er sæt

Nína Richter skrifar: Vá hvað ég er sæt
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Thomas Möller skrifar: Hnignun – hvaða hnignun?

Thomas Möller skrifar: Hnignun – hvaða hnignun?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Stjórnarandstaðan stingur höfðinu í sandinn

Sigmundur Ernir skrifar: Stjórnarandstaðan stingur höfðinu í sandinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Áfallasaga

Óttar Guðmundsson skrifar: Áfallasaga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Bílaumferðin

Óttar Guðmundsson skrifar: Bílaumferðin
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Nína Richter skrifar: Ljóskunni afneitað

Nína Richter skrifar: Ljóskunni afneitað
EyjanFastir pennar
10.01.2026

Óttar Guðmundsson skrifar: Ævisögur

Óttar Guðmundsson skrifar: Ævisögur
EyjanFastir pennar
09.01.2026

Nína Richter skrifar: Íslenska kindin

Nína Richter skrifar: Íslenska kindin