fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Einkennileg staða innan Framsóknar í aðdraganda formannskjörs um miðjan febrúar

Eyjan
Mánudaginn 19. janúar 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil óvissa einkennir ástandið í Framsóknarflokknum varðandi val á nýjum formanni sem fram fer á flokksþingi eftir tæpan mánuð. Línur eru ekki enn teknar að skýrast varðandi nýjan formann.

Margir sýndu því áhuga að fylkja sér um Willum Þór Þórsson en hann mun nú hafa afþakkað stuðninginn. Willum tók við stöðu forseta ÍSÍ á síðasta ári eftir yfirburðakosningu. Hann telur ekki að það gangi upp að fara út á hinn pólitísk vígvöll við þær aðstæður og hann vill ekki yfirgefa ÍSÍ svo skömmu eftir fína kosningu þar. Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar, hefur ítrekað verið orðuð við formannsframboð í flokknum en talið er að áhugi flokksmanna á henni hafi mjög dvínað, meira að segja í Skagafirði þar sem talið var að hún ætti vísan stuðning. Flokkurinn á ekki margra kosta völ við þessar aðstæður. Ásmundur Einar Daðason er hættur í stjórnmálum, Einar Þorsteinsson spilaði borgarstjórastólnum frá sér þegar hann plottaði yfir sig í Reykjavíkurborg og þingflokkur Framsóknar er fámennur og fátæklegur.

Orðið á götunni er að innan Framsóknar hafi einhverjir verið farnir að óttast að ekki tækist að ná samstöðu um þokkalegan formann á landsfundinum í febrúar og að Sigurður Ingi Jóhannsson yrði einfaldlega fenginn til að sitja áfram sem formaður. Við þær aðstæður var Finnur Ingólfsson, fyrrum ráðherra og varaformaður flokksins, fenginn til að leiða leitina að nýjum formanni Framsóknar. Þó að Finnur hafi fyrir löngu horfið af vettvangi stjórnmálanna er hann enn sterkur maður að tjaldabaki í Framsókn. Nú er horft til þess að hann greiði úr þeim vandræðagangi sem er tekinn að myndast og komi með lausn á forystukreppunni í flokknum. Hver sú lausn gæti orðið er erfitt að segja til um á þessari stundu. En þó munu allir kostir þykja betri en sá að Sigurður Ingi sitji bara áfram. Er ekki bara best að kjósa Sigurð Inga áfram – yrði ekki sigurstranglegt slagorð!

Ingibjörg Isaksen, þingmaður flokksins í Norðaustur kjördæmi, er sögð hafa mikinn áhuga á að taka við formennsku í flokknum. Hún er fyrrum bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri og tveir af fimm þingmönnum Framsóknar koma úr kjördæmi hennar. Ingibjörg er hluti af nokkuð öflugri flokksklíku fyrir norðan sem hefur mikil áhrif í flokknum þar. Hún þykir hins vegar ekki hafa sýnt mikla forystuhæfileika frá því hún tók sæti á Alþingi árið 2021 en hún gegnir nú stöðu formanns þingflokks Framsóknar.

Orðið á götunni er að Sigurður Ingi Jóhannsson geti helst hugsað sér Ingibjörgu sem eftirmann sinn. Hún virðist ætla að veðja á að fráfarandi formaður verði bandamaður hennar. Til marks um það er bent á að Ingibjörg birtir á heimasíðu sinni grein sem framkvæmdastjóri Framsóknar skrifaði um Sigurð Inga og birti á Vísi en þar er fráfarandi formaður hafinn upp til skýjanna sem mikilmenni og honum líkt við fyrrum formenn flokksins og talinn upp með Eysteini Jónssyni, Ólafi Jóhannessyni, Steingrími Hermannssyni og Halldóri Ásgrímssyni. Þetta þykir býsna vandræðalegt miðað við þá stöðu sem Framsókn er komin í undir forystu Sigurðar Inga sem skilar flokknum með minnsta fylgi í hundrað ár í valdalausri og misheppnaðri stjórnarandstöðu. Oflof er háð en þannig virðist Ingibjörg ekki hugsa endurbirtingu greinar framkvæmdastjóra flokksins.

Orðið á götunni er að óvíst sé að Finnur líti á Ingibjörgu Isaksen sem æskilegan formann Framsóknar, þó að það sé ekki talið útilokað. Þeir sem þekkja Finn vita að hann hefur mikil sambönd innan flokksins og nýtur virðingar. Finnur er klókur og vís með að koma með nýja og óþekkta hugmynd að borðinu sem gæti höggvið á hnútinn.

Tíminn er hins vegar knappur því að flokksþingið hefst þann 14. febrúar, eftir minna en fjórar vikur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki