fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Eyjan

Brynjar Níelsson gefur sjaldan loforð en lofar þó þessu

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. mars 2026 12:30

Brynjar Níelsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson er hættur að vera bara spaugari á samfélagsmiðlum og skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar auk þess að vera starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

Brynjar eins og fleiri horfði á Silfrið á RÚV á mánudag þar sem oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Samfylkingarinnar komu saman. Brynjar bendir á að augljóslega sé hann ekki hlutlaus í afstöðu sinni til þessara framboða en segir áhorf á þáttinn  sögu ríkari fyrir kjósendur.

„Nýr maður er í brúnni hjá Samfylkingunni, sem var lengi vel í Sjálfstæðisflokknum eins og svo margir aðrir oddvitar framboða í borginni. Ég geri engar athugasemdir við það og var sjálfur lengi vel heitur fyrir Flokki fólksins. Það er aldrei of mikið af sjálfstæðismönnum í framboði.“ 

Á Brynjar þar við Pétur H. Marteinsson en Brynjar segist illa skilja hann og segir málflutning Péturs nokkuð mótsagnakenndan.

„Helst var á honum að skilja að borgin væri sú besta í heiminum ef ekki í veröldinnni þrátt fyrir öll skipulagsslysin, enginn kæmist ferða sinna með góðu móti, fáir vilji vinna á leikskólum, nemendur í grunnskóla væri meira og minna ólæsir, skólahúsnæði myglað og lögbundin þjónusta heldur lakari en í nágrannasveitarfélögum þrátt fyrir hærri álögur á íbúa. Þá væri rekstur borgarinnar í það góðum málum að mati odddvitans að hagræðing væri eiginlega ástæðulaus.“

Segir Brynjar það ljóst að borgarbúar geta ekki vænst breytinga verði Samfylkingin áfram við stjórn borgarinnar.

„Ég gef sjaldan loforð, en tel mig þó geta lofað borgarbúum því að það verða engar breytingar í borginni fái Sjálfstæðisflokkurinn ekki afgerandi góða kosningu í vor.“

Segir Brynjar það margreynt að kjósa aðra flokka. „Nú er bara spurningin sú hvort borgarbúar vilji breytingar eða óbreytta stefnu.“

Hér má horfa á Silfrið frá því á mánudag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Þekking í stað tilfinninga

Björn Jón skrifar: Þekking í stað tilfinninga
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Andri Þór Guðmundsson: Stórkostlegt fyrir Ölgerðina að fara á markað – fengum 7000 fjölskyldur í hluthafahópinn

Andri Þór Guðmundsson: Stórkostlegt fyrir Ölgerðina að fara á markað – fengum 7000 fjölskyldur í hluthafahópinn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Alma Möller: Kemur til greina að merkja sérstaklega mjög óhollar vörur, rétt eins og tóbak

Alma Möller: Kemur til greina að merkja sérstaklega mjög óhollar vörur, rétt eins og tóbak
Eyjan
Fyrir 1 viku

Braut ríkisstjórnin lög um þingsköp? – Umdeilt ákvæði sem hefur ítrekað valdið átökum

Braut ríkisstjórnin lög um þingsköp? – Umdeilt ákvæði sem hefur ítrekað valdið átökum