fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Eyjan

Syndis veitti öryggisþjónustu vegna kosninga í Bangladesh

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. mars 2026 14:42

Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Netöryggisfyrirtækið Syndis var fengið til að veita ráðgjöf og öryggisþjónustu í tengslum við rafræna innviði sem tengjast kosningum í Bangladesh nýverið. Verkefnið snérist um mat og vernd mikilvægra stafrænna kerfa sem notuð eru við framkvæmd og umsýslu kosninga, eins og kemur fram í tilkynningu.

Kosningar í Bangladesh fara fram í flóknu og viðkvæmu geopólitísku umhverfi þar sem traust, hlutleysi og tæknileg sérþekking skipta miklu máli. Leitað var sérstaklega til fyrirtækis utan svæðisins til að tryggja sem sjálfstæðasta og faglegasta nálgun við öryggismat og vernd rafrænna kerfa í tengslum við kosningarnar.

„Það er heiður fyrir okkur hjá Syndis að hafa verið valin til að sinna þessu verkefni. Þátttaka í verkefni af þessu tagi er viðurkenning á þeirri sérfræðiþekkingu sem byggð hefur verið upp innan fyrirtækisins. Þegar um er að ræða kerfi sem tengjast lýðræðislegum ferlum er mikilvægt að öryggi þeirra sé metið af aðilum sem njóta trausts og hafa djúpa tæknilega þekkingu,“ segir Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis.

Syndis hefur á undanförnum árum byggt upp sterkt orðspor á sviði netöryggis í Evrópu og sinnir meðal annars viðkvæmum verkefnum fyrir stjórnvöld, fjármálafyrirtæki og mikilvæga innviði. Fyrirtækið rekur einnig öryggisvöktun sem starfar allan sólarhringinn og sérhæfir sig í bæði varnaraðgerðum og prófunum á öryggi kerfa. Syndis starfar meðal annars fyrir átta sveitarfélög í Svíþjóð og veitir þeim SOC þjónustu.

„Verkefnið í Bangladesh fól meðal annars í sér öryggisúttektir, ráðgjöf um vernd rafrænna kerfa og stuðning við viðbragðsáætlanir ef netárásir kæmu upp í tengslum við kosningaferlið. Syndis hefur á undanförnum árum aukið umsvif sín á alþjóðlegum markaði og tekið þátt í verkefnum víða um Evrópu og í samstarfi við alþjóðlegar stofnanir á sviði netöryggis,“ segir Anton Már ennfremur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Alma Möller: Fjölþættar lausnir þarf – bindum vonir við leiguleiðina

Alma Möller: Fjölþættar lausnir þarf – bindum vonir við leiguleiðina
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Jón Gnarr skrifar: Móðurmál og mannamál

Jón Gnarr skrifar: Móðurmál og mannamál
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ofboð og geðshræring stjórnarandstöðunnar út af litlu máli

Orðið á götunni: Ofboð og geðshræring stjórnarandstöðunnar út af litlu máli
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Davíðs minnst á Alþingi – „Genginn einn litríkasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðari tíma“

Davíðs minnst á Alþingi – „Genginn einn litríkasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðari tíma“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Willum Þór Þórsson: Sakna stjórnmálanna en virði mitt núverandi hlutverk

Willum Þór Þórsson: Sakna stjórnmálanna en virði mitt núverandi hlutverk