fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Eyjan
Föstudaginn 27. febrúar 2026 11:49

Páll Magnússon og Íris Róbertsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja og Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar hafa bæði tilkynnt að þau muni ekki sækjast eftir endurkjöri í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þau hafa farið fyrir framboðinu Fyrir Heimaey, á þessu kjörtímabili, sem hefur myndað meirihluta í bæjarstjórn ásamt Eyjalistanum síðan eftir kosningarnar 2018. Íris hefur verið bæjarstjóri og setið í bæjarstjórn öll árin átta en Páll var kjörinn í bæjarstjórn 2022.

Íris segir í Facebook-pistli að þau síðustu átta ár sem hún hefur verið bæjarstjóri hafi þroskað hana mikið. Þau hafi reynt á en líka veitt henni styrk og mikla gleði. Ómetanleg reynsla sitji eftir og nýir vinir og samstarfsfélagar bæst í hópinn.

Í hennar huga sé hollt og gott að þeir sem gefi kost á sér í stjórnmálum staldri við eftir hvert kjörtímabil:

„Þegar ég lít til baka er ég mjög ánægð með þann árangur sem við höfum náð. Við höfum skapað ramma til vaxtar fyrir samfélagið og verið með raunverulega áherslu á Vestmannaeyjar sem skólasamfélag. Samstaða er nauðsynleg í hagsmunagæslu gagnvart ríkinu og ég er sérstaklega ánægð með þetta kjörtímabil í þeim efnum. Það góða samstarf sem er í bæjarstjórn og bæjarráði er samfélaginu okkar til heilla í öllum þeim áskorunum sem við mætum.“

Hún segist þakklát og auðmjúk fyrir að hafa fengið tækifæri, í umboði félaga sinna, til að starfa sem bæjastjóri Vestmannaeyinga, fyrst kvenna. Þegar kjörtímabilinu ljúki í vor muni hún gera upp þessi átta ár.

Íris segir það henni ómetanlegt að finna þá ánægju sem Eyjamenn hafi látið í ljós með störf hennar og fram hafi komið meðal annars í Gallup-könnun nýverið:

„Að geta lokað þessum kafla með Fyrir Heimaey með þetta veganesti gerir mig glaða og stoltaTakk fyrir traustið, öll samtölin og hvatninguna til áframhaldandi góðra verka; ég met það mikils. Í vor hefst nýr kafli.“

Hvort það sé ljóst hvernig þessi nýi kafli verður kemur hins vegar ekki fram hjá Írisi.

Páll líka

Páll segir í tilkynningu á sinni Facebook-síðu að hann sé  sáttur, glaður og stoltur með þann árangur sem náðst hafi í rekstri og stjórn bæjarins þau fjögur ár sem hann hafi setið í bæjarstjórn og raunar öll átta árin sem bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey hafi verið í forystu í Eyjum. Hann sé þakklátur fyrir þann stuðning sem bæjarbúar hafi sýnt framboðinu og sé einnig þakklátur félögum sínum í bæjarstjórn fyrir að treysta honum til að vera forseti bæjarstjórnar.

Þegar nær dragi lokum kjörtímabilisins muni hann gera nánari grein fyrir verkum meirihlutans síðustu ár.

Það stefnir í að Fyrir Heimaey muni ekki bjóða fram í vor en framboðið náði 2018 að losa þau miklu tök sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði lengi haft á bæjarmálum í Vestmannaeyjum. Það er þó alls óvíst að leiðin verði greið fyrir Sjálfstæðisflokkinn að ná aftur hreinum meirihluta en Miðflokkurinn hefur boðað framboð í Eyjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi