Ríkisstjórnin ætlar að klára stóru málin og hefur þegar klárað stór mál á borð við söluna á Íslandsbanka sem hafði engin eftirmál, sem er nýmæli. Fólk vildi breytingar og kann að meta að það fékk breytingar. Mikil samheldni er í ríkisstjórninni og gott er að vinna undir verkstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Eyjan - Thorbjorg Sigridur - 6
„Ríkisstjórnin ætlar að klára stóru málin og hefur klárað stór mál. Mig langar til að nefna atriði eins og árangur fjármálaráðherra við söluna á Íslandsbanka. Glimrandi fín sala, gekk vel og engin læti í kjölfarið. Það er líka nýmæli.“
Það er nýmæli. Síðast þegar Sjálfstæðisflokkurinn seldi hlut í bankanum endaði það með því að fjármálaráðherra þurfti að segja af sér og bankastjórinn varð að víkja.
„Og hæsta sekt Íslandssögunnar af hálfu Fjármálaeftirlitsins, álit umboðsmanns Alþingis um vanhæfi. Mér hefur fundist ríkisstjórnin og þessir þrír flokkar vinna mjög vel saman, það er góð stemning. Ég finn að andinn í Samfélaginu er með okkur. Fólk vildi breytingar og nú erum við að vinna að þeim …“
Það kann líka að meta að það fékk breytingar.
„Við höfum verið lánsöm um það að það hefur verið góð verkstjórn. Ég er t.d. bara mjög ánægð með það hvernig forsætisráðherrann okkar, Kristrún Frostadóttir, vinnur, það er gott að vinna með henni og það skiptir máli. Ráðherrarnir úr öllum flokkum fá að njóta sín því að það er ekki þannig, eins og stundum hefur verið, að einn flokkur ræður eða það sé verið að beita einhvern neitunarvaldi. Það eru líka ný vinnubrögð og það kannski hjálpar að ráðherrar … við erum mörg að gera þetta í fyrsta sinn, það er ekki þannig að fólk upplifi það þannig að það eigi eitthvað. Ég er mjög meðvituð um það að við erum að tala um fjögur ár. Ég vil nýta þann tíma vel,“ segir Þorbjörg Sigríður.
Hún segist vera mjög stolt af því góða fólki sem vinnur í ráðuneytinu, dómsmálaráðuneytið sé vel mannað. „Mér finnst ég finna það hvert sem ég fer – ég er bara stoppuð í búðinni og þegar ég fer í sund. Fólkið í landinu kann að meta það hvað við erum að gera. Ég er t.d. ánægð með að mér finnst vera heilbrigður og góður tónn gagnvart atvinnulífi – við höfum verið að tala fyrir einföldun á regluverki. Jóhann Páll var að gera fína hluti þar núna. Ég er sjálf í einföldunarmáli og er að fara að leggja fram frumvarp um að létta á þessum skilyrðum jafnlaunavottunar í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Auðvitað er launajafnrétti mikilvægt markmið og jafnlaunavottun var auðvitað verkfæri í þeim tilgangi. Svo heyrum við gagnrýnina. Við heyrum að fyrirtæki, lítil og meðalstór, tali um það að þetta sé svifaseint, þetta sé kostnaðarsamt og auðvitað hlustum við. Eins og ég segi, þá bara bregst maður við og ég er bara stolt af því að leggja fram frumvarp um það, vonandi í haust, að létta á í þágu atvinnulífs.“
Þorbjörg Sigríður er með frumvarp um sameiningu sýslumannsembætta. „Það er einföldunarmál líka að búa til stærra og kraftmeira embætti sem þó verður starfandi hringinn í kringum landið. Það er einföldunarmál, það er hagræðingarmál sem mun leiða til lægri kostnaðar, rúmlega 200 milljónir á ári, það munar um það. Þetta er líka byggðajöfnunarmál því að ætlunin er að flytja menntuð og góð störf út í byggðirnar. Mér finnst okkur vera að ganga vel, mér finnst ég finna fyrir meðbyrnum og þetta er skemmtilegt.“
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.