fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Eyjan

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?

Eyjan
Mánudaginn 23. júní 2025 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómsmálaráðherra hefur spurt héraðssaksóknara hvernig staðið var að varðveislu viðkvæmra gagna sem láku frá embættinu (þegar það hét embætti sérstaks saksóknara) og eru nú í höndum RÚV. Svör hafa borist og verða send til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar til umfjöllunar. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, segir gagnaleka af þessu tagi ekki mega endurtaka sig. Þorbjörg Sigríður er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Eyjan - Thorbjorg Sigridur - 4
play-sharp-fill

Eyjan - Thorbjorg Sigridur - 4

„Þetta er auðvitað mjög vont mál fyrir allan almenning hvað það varðar að þetta heggur svo alvarlega í traust á grundvallarstofnunum ríkisins. Þetta er mjög vont mál fyrir kerfið og allt það góða fólk sem þar starfar að heilindum. Þetta er auðvitað óþolandi fyrir það fólk sem um ræðir. Ég vil bara undirstrika það persónulega; að það séu persónuleg gögn fólks einhvers staðar úti í samfélaginu er óþolandi tilhugsun …“

Þetta lítur út eins og utanumhald um þessi viðkvæmu gögn hafi verið í molum hjá embætti sérstaks saksóknara.

„Það hefur augljóslega ekki verið nægilega gott. Hitt er síðan það að það virðist líka að þarna hafi verið um gagnaþjófnað að ræða. Ef maður ætlar að horfa á þetta alveg kalt getur ekkert kerfi algerlega varið sig fyrir því að verða fyrir svona broti. Einhver heilbrigðisstarfsmaður gæti brotist inn í sjúkraskrár og tekið gögn, þetta getur allt saman gerst …“

En svo var þetta ekki rannsakað, það var felld niður rannsókn á sínum tíma.

„Ég þekki ekki nákvæmlega hvernig þetta var en mál getur verið fellt niður þó að það hafi verið rannsakað ef það þykir ekki nægilegt til sakfellingar.“

Í ljósi þeirra gagna sem núna liggja fyrir lítur út fyrir að embætti ríkissaksóknara hafi kannski ekki farið í þetta af mikilli alvöru.

„Ég hef ekki innsýn í það, ég þekki ekki hvernig rannsóknin var og hver það var, en ég skil alveg að þetta veki spurningar. Ég get sem dómsmálaráðherra ekki gert neitt í því sem áður hefur átt sér stað en tek því mjög alvarlega að tryggja að svona geti aldrei endurtekið sig og skrifaði héraðssaksóknara strax bréf með sex afmörkuðum spurningum þar sem ég er að reyna að beina kastljósinu að því: Hvað voruð þið að gera til að tryggja öryggi þessara gagna.“

Það er auðvitað lykilspurning í þessu máli.

„Hvernig var öryggi gagnanna háttað? Hvaða reglur giltu? Hvernig var þeim framfylgt? Ég var að fá svör og ætla að koma þessum svörum núna til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem er að kanna málið og gefa þeim þá færi á að rýna þessi svör líka. Ég geri allt sem ég get til að liðsinna þinginu í því að geta unnið þetta mál. Þar vildi ég virkja mínar eftirlits- og yfirstjórnunarheimildir gagnvart þessu embætti, sýna það í verki að ég lít þetta alvarlegum augum. Svo staldra ég alltaf við þá spurningu: Hverjir voru það sem höfðu áhuga á gögnunum?“

Þorbjörg Sigríður segir að út frá því sem birst hefur í umfjöllun RÚV um málið megi ætla að einhverjir hafi verið að kaupa þessi gögn. „Sá þáttur málsins finnst mér ekki síður alvarlegur. Þá verður að spyrja að því, finnst mér: Hvað vissu þeir aðilar sem fengu þessi gögn? Höfðu þeir ástæðu til að ætla að þau væru illa fengin? Hvað vissu menn? Það er stór spurning líka. Við getum tekið hliðstætt dæmi; væru þetta t.d. heilbrigðisgögn innan úr heilbrigðiskerfinu okkar – það væru aðilar sem hefðu áhuga á að kaupa slíkar upplýsingar, ég hugsa að við myndum staldra við það.“

Það má nú ætla að þeir sem keyptu eða fengu þessi gögn hafi vitað að þeirra var ekki aflað með eðlilegum hætti.

„Ég segi sem minnst um það en ég velti spurningunni fyrir mér.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Cleon ráðinn forstöðumaður markaðsmála N1 

Jón Cleon ráðinn forstöðumaður markaðsmála N1 
Hide picture