fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
Eyjan

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra

Eyjan
Þriðjudaginn 17. júní 2025 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru mikil tíðindi að Guðmundur Kristjánsson, aðaleigandi útgerðarfélagsins Brims, hafi sagt af sér formennsku í Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi eftir að hafa tekið við formennsku fyrir tveimur mánuðum. Guðmundur er einn umsvifamesti atvinnurekandi landsins í sjávarútvegi og hefur byggt upp myndarleg fyrirtæki sem margir líta til sem fyrirmyndar í íslenskum sjávarútvegi. Þeir sem þekkja vel til innan sjávarútvegsins telja að Guðmundur hafi lengi verið með aðrar áherslur varðandi greinina en margir af hinum stóru í greininni. Stærstu fyrirtæki landsins í sjávarútvegi eru Brim, Samherji, Síldarvinnslan og Ísfélagið. Á eftir þeim koma svo FISK (Kaupfélag Skagfirðinga), Skinney-Þinganes, Vinnslustöðin og Loðnuvinnslan. Hermt er að Guðmundur hafi viljað reyna sáttaleið varðandi hækkun veiðigjalds sem ríkisstjórnin hefur boðað í stað þess að ráðast gegn stjórnvöldum með hótunum og ómerkilegum áróðri sem flestir sjá í gegnum – nema þeir hrokafyllstu í greininni sem virðast ráða för. Framganga framkvæmdastjóra samtakanna, Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur, hefur ekki verið öllum að skapi og sumir hafa hreinlega viljað reka hana úr starfi. Aðrir virðast vera sáttir við að halda henni og greiða henni 5 milljónir króna á mánuði í laun eins og fram hefur komið í tekjublaði Frjálsar verslunar.

Orðið á götunni er að Guðmundur Kristjánsson hafi verið hneykslaður á auglýsingaskrumi samtakanna þegar norskir leikarar voru sóttir til að leika í auglýsingum þeirra en þeir eru einkum þekktir fyrir að hafa komið fram sem siðlausir dópistar og dónar í svonefndum EXIT-þáttum. Talið er að þessi rándýra auglýsingaherferð samtakanna hafi ekki gert annað en herða landsmenn í andstöðu við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og rifið fylgi af þeim stjórnmálaflokkum sem hafa gengið erinda þeirra á Alþingi með blekkingum og lygaáróðri. Sífellt er talað um hækkun skatta þegar engar skattabreytinga eru boðaðar heldur hækkun á frádráttarbærum rekstrarkostnaði sjávarútvegsfyrirtækja sem greiða gjald fyrir afnot af eign sem þeir eiga ekki en fá afnot af. Líkja má þessu við húsaleigu sem leigjendur greiða til leigusala. Í fyrirtækjarekstri er þar um frádráttarbæran rekstrarkostnað að ræða.

Fráfarandi formaður er sanngjarn maður að mati þeirra sem hafa kynnst honum. Hann hefur viljað sáttaleið varðandi hækkun afnotagjalda af sjávarauðlind þjóðarinnar sem útgerðin hefur aðgang að – á meðan lögum um það fyrirkomulag er ekki breytt. Guðmundur gerir sér ljóst að valdið er hjá kjörnum fulltrúum sem valdir voru í lýðræðislegum kosningum þann 30. nóvember á síðasta ári. Þá höfnuðu kjósendur þáverandi vinstri stjórn með svo afgerandi hætti að Vinstri græn féllu út af Alþingi en Sjálfstæðisflokkur og Framsókn fengu minnsta fylgi í hundrað ára sögu þessara flokka. Þjóðin krafðist breytinga. Afgerandi breytinga á mörgum sviðum, þar á meðal í sjávarútvegi. Íslenskir sægreifar eru flestir flokksbundnir bakhjarlar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Þeir virðast taka undir með þingmönnum þessara flokka að það stappi nærri valdaráni að þeim hafi verið hafnað í lýðræðislegum kosningum.

Þetta er ástæða þess að allur hamagangurinn hefur verið sviðsettur. En kjósendur sjá í gegnum þetta eins og þegar mælist í skoðanakönnunum. Guðmundur Kristjánsson virðist hafa séð þetta fyrir og viljað láta skynsemina ráða og leita sátta. Aðrir stjórnarmenn og framkvæmdastjórinn virðast hafa haft aðra sýn og því skildu leiðir. Það hlýtur að vera samtökunum mikið áfall að jafn öflugur og virtur maður og Guðmundur Kristjánsson hafi tekið þessa afstöðu.

Í stjórn Samtaka í sjávarútvegi voru kjörnir auk Guðmundar á síðasta vori alls 19 stjórnarmenn. Þeirra á meðal má nefna Baldvin Þorsteinsson frá Samherja og Gunnþór Ingvason frá Síldarvinnslunni en þessi fyrirtæki eru samtvinnuð í eignarhaldi, Einar Sigurðsson frá Ísfélaginu, en hann er sonur Guðbjargar Matthíasdóttur, og á vegum hennar er einnig í stjórninni Katrín Pétursdóttir í Lýsi, sem er stjórnarmaður í Morgunblaðinu. Ætla má að þetta harðlínufólk ráði nú mestu innan stjórnar samtakanna.

Orðið á götunni er að það áfall sem afsögn formannsins er ætti að verða til þess að aðrir forystumenn sjávarútvegsins endurmeti vinnubrögð sín og breyti um stefnu. Því er spáð að það muni ekki gerast því að hrokinn er svo mikill að ekki er við því að búast að menn staldri við og endurmeti tapaða stöðu. Sægreifarnir verða að horfast í augu við að þeir ráða ekki lengur ríkisstjórninni. Það urðu stjórnarskipti. Nú er komin ný ríkisstjórn sem þjóðin styður og hún lætur ekki sægreifa segja sér fyrir verkum eins og tíðkast hefur.

Innan skamms verða samþykkt lög frá Alþingi um hækkun veiðigjalda. Frádráttarbær rekstrarkostnaður sjávarútvegsins mun hækka og ofurhagnaður greinarinnar mun lækka eitthvað. Það mun svo koma á daginn að þessi aðgerð mun engu breyta um stöðu sveitarfélaga, um nýsköpun í sjávarútvegi eða um fjárfestingar í sjávarútvegi og enginn mun missa vinnuna eins og látið hefur verið í veðri vaka í lygaáróðri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Orðið á götunni er að enginn skaði sé skeður þótt eitthvað dragi úr fjárfestingum útgerðarinnar í heildverslununum, verslunum, stórmörkuðum, skipafélögum, vátryggingafélögum og útleiguhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu eins og einkennandi hefur verið á undanförnum árum. Ekkert annað mun breytast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 dögum

Alvarlegt flugslys í Indlandi – Full vél á leið til London Gatwick brotlenti

Alvarlegt flugslys í Indlandi – Full vél á leið til London Gatwick brotlenti
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þáttaskil í Evrópuumræðu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þáttaskil í Evrópuumræðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Ég er ekki í nestiskulnun

Nína Richter skrifar: Ég er ekki í nestiskulnun