fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Björg Magnúsdóttir: Er það til góðs að rífast við einhverja hagfræðinga um millistykki og bílastæði?

Eyjan
Laugardaginn 29. nóvember 2025 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þátttakan í stúdentapólitík og formennskan í Stúdentaráði Háskóla Íslands voru eins konar orkugjafi fyrir Björgu Magnúsdóttur, fjölmiðla- og athafnakonu, á háskólaárunum enda er hún mikil félagsvera. Hún segir þó að umræðurnar í Stúdentaráði hafi ekki alltaf verið á háu plani eða viðfangsefni merkileg þó að mikilvæg hagsmunabarátta fari þar fram. Björg er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úrþættinum hér:

Björg Magnúsdóttir - 3
play-sharp-fill

Björg Magnúsdóttir - 3

Var þetta Röskvutímabil, þessi ár sem þú varst í skólanum? Það var það, var það ekki? Þú varst formaður Stúdentaráðs.

„Jú, það var það. Ég enda á því að vera sem sagt formaður Stúdentaráðs. Í hruninu, þeim mikla, skemmtilega tíma og þá auðvitað fylltist háskólinn af fólki. Það voru margir sem nýttu þann tíma til að fara aftur í nám en þetta var á þeim tíma líka þegar Kennaraháskólinn var að sameinast Háskóla Íslands og Háskólatorg var að taka til starfa. Okkur finnst Háskólatorg sjálfsagt í dag og fólk sem hefur verið í HÍ þekkir það. Þetta er algjör svona suðupottur, þarna hittast allir. Þetta var ekki svo. Deildirnar voru bara með hver sitt hús á víð og dreif um háskólasvæðið og þarna bara gerist eitthvað rosalega flott fyrir háskólasamfélagið þegar kemur þarna einhvern veginn svona hjarta á svæðið. Þetta var alveg frábær tími. En við vorum þarna að kljást við meðal annars Þorgerði Katrínu og Katrínu Jakobsdóttur og fleiri.

Það lá alltaf sú hótun í loftinu að hækka skráningargjöld, eins og það var kallað, í Háskóla Íslands. Við tókum bara harða afstöðu á móti því. Þetta áttu að vera einhver gæði fyrir alla og sérstaklega einmitt þegar syrtir í álinn úti í þjóðfélaginu og geta einhvern veginn tekið á móti fólki og þú veist, bara mennta fólk og fólk geti sótt sér fróðleik og eflt sig og þar fram eftir götunum. Þannig að þetta skipti okkur miklu máli. En þarna var nú svona einhver leið vörðuð. Já, þetta var oft mjög fyndið. Það var verið að rífast um millistykki og bílastæði þarna við einhverja Vöku-liða og svona. Þetta var ekkert allt á háu plani.“

Nei, nei, ég var í stúdentapólitík á sínum tíma og ég man alveg niður á hvaða plan þetta gat komist.

„Akkúrat. Akkúrat. Það, við skulum bara setja punktinn hér.“

Ég er þó ekki viss um að þetta hafi komist alveg niður á það plan sem sem þjóðþinginu okkar hefur stundum tekist að komast niður á.

„Einmitt. Einmitt, það er nú það. En það er auðvitað auðvelt að fara niður í kanínuholuna í einhver rifrildi og popúlisma og svo þarf nú stundum bara að staldra við og hugsa: Heyrðu, bíddu, er þetta gagnlegt? Er þetta einhverjum til góðs að vera hérna að rífast og skammast og í einhverjum hálfgerðum slagsmálum við einhverja hagfræðinga um einhver millistykki eða hvað? Er tímanum kannski betur varið í eitthvað annað?“

Mögulega.

„Mögulega.“

Stúdentapólitíkin og félagsmálin í háskólanum. Fannst þér það ekkert þvælast fyrir náminu hjá þér?

„Nei, þvert á móti. Þetta var bara svo mikið bensín og ég er algjör félagsvera. Ég hef alltaf einhvern veginn verið í öllu, nemendaráðum og stjórnum og félagsmálum og er að skipuleggja einhvern veginn allt sem gerist hjá fjölskyldunni og svona. Ég er bara einhvern veginn vön því, vön þeim takti, þannig að, nei, bara þvert á móti myndi ég segja. Þetta var svona algjört bensín og svona bónus að eiga þá inni eitthvað skemmtilegt að gera, þegar það var búið að læra eða fara í próf eða hvað það nú var.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Hide picture