fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Obba og Hanna sýna á sér aðra hlið – Ekki gott að lenda á eftir Þorgerði Katrínu í ræðustól af einfaldri ástæðu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 13. júní 2025 10:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stöllurnar og þingmenn Viðreisnar, Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, og Þorbjörg Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, settust saman fyrir Eldhúsdagsumræður á miðvikudag og svöruðu nokkrum óhefðbundnum spurningum.

„Ég segi ótrúlega gott. Pissa í mig. Ég veit ekki hvar ég er,“ svarar Þorbjörg aðspurð um hvernig þær hafi það. „Ég er svolítið svöng,“ svarar Hanna.

Hanna bætir við að Þorbjörg heitir Sigríður að millinafni, en sú síðarnefnda gegnir einnig embætti menningarmálaráðherra núna.

Er einhver svona morgunrútína hjá ykkur?

„Vakna,“ svarar Þorbjörg hlæjandi. Segist hún hafa verið á fundi í þjóðaröryggisráði þar sem boðið var upp á snúða og eru þær sammála um að það sé erfitt að vera sá sem tekur fyrsta snúðinn.

„Sú að eiga í svona mislöngum samningaviðræðum við sjálfa mig um hvort ég eigi að fara á fætur þann daginn. Tapa alltaf og fer á fætur. Og svo er það kaffi. Og þá er ég eiginlega orðin góð,“ segir Hanna. Þorbjörg tekur undir, og að loknum fyrsta kaffibollanum getur dagurinn hafist.

Hvað opnið þið fyrst á morgnana?

Hanna segist fara yfir helstu fréttir. „Virðulega erlenda fjölmiðla helst á frönsku, nei djók.“

„Le Monde, Mér finnst alltaf eitthvað vanta ef ég er ekki búin að lesa leiðarann frá þeim,“ segir Þorbjörg.

Aðspurðar um hvernig eldhúsdagsumræður séu öðruvísi en aðrar ræður svarar Þorbjörg:
„Okkar ræður eru betri.“ „Skemmtilegri og beittari. Þetta er líkt og umræður um stefnuræðu forsætisráðherra hátíðlegra,“ bætir Hanna við. „Já þetta er spari. Þetta er smá útskriftarathöfnin.“

Beðnar um að lýsa þingvetrinum með einum emoji og hvort þær viti hvað það er segist Þorbjörg þekkjar broskallahjartað. Hanna segir að þingstörf meirihlutans séu skófla. Þorbjörg bætir við Inga [Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra] að brjóta eitthvað. „Já sleggja og skófla mögulega,“ bætir Hanna við. „Á minnihlutann myndum við bara setja grenjuhláturskall, svona tár, öskurgrátandi.“

Aðspurðar um hvort þær skrifi ræðu eða séu bara með punkta segir Þorbjörg að ef hún lendi í því að tala á eftir Hönnu Katrínu og hún tali yfir tímamörk þá þurfi hún jafnvel að henda nokkrum blaðsíðum.

„Ég hef lent í því að tala á eftir Þorgerði Katrínu sem talaði svona átján mínútum of lengi. Kemur með skrifaða ræðu og svo bara:„Sem minnir mig á aðra sögu. Og svo bara….Kæru landsmenn gleðilegt sumar.“

Fallegast í fari hvor annarrar?

„Hanna Katrín er góður liðsmaður og hún er góð vinkona. Og ég elska líka þegar hún er í svona grjóthamnum sínum. Talandi um valdarán í fjölmiðlum. Láta mannskapinn dálítið heyra það. Ég fíla það.“

„Obba er mjög góður liðsmaður og góður vinur og mér finnst fáir betri í því að vera peppandi þegar maður þarf á því að halda vegna þess að hún á nefnilega til að luma á eins og einum og einum brandara og það er bara rosa gott þegar að á reynir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki