Trump þarf venjulega ekki neina aðstoð við að vekja athygli, verða forsíðufrétt eða skapa sundrung. En nú er það fyrrgreind kona sem vekur einna mesta athygli í tengslum við framboð hans.
Hún heitir Laura Loomer og hefur sést við hlið Trump hvað eftir annað að undanförnu. Hún er sjálfskipaður samsæriskenningasmiður og hatar Íslamstrú eins og pestina. Það þarf því ekki að koman mikið á óvart að þegar hún er staðsett í hinu pólitíska litrófi lendir hún allra lengst til hægri, svo langt til hægri að það er ekki hægt að komast lengra.
En mörg ummæli hennar eru svo svakaleg að margir af ráðgjöfum Trump hafa varað hann við að hlusta á hana því hún geti í versta tilfelli kostað hann sigurinn í kosningunum í nóvember. NBC News skýrir frá þessu og byggir á upplýsingum frá nokkrum ráðgjöfum Trump.
„Hún verður að fara. Laura Loomer getur ekki verið með. Það gengur bara ekki,“ hefur NBC eftir ónafngreindum bandamanni Trump sem bætti við: „Þessi kona réðist á varaforseta Bandaríkjanna með kynþáttahatri. Þetta var sjokkerandi og hún hefur ekki beðist afsökunar.“
Ummælin sem heimildarmaðurinn vísar til vöktu mikla reiði hjá bæði Demókrötum og Repúblikönum í síðustu viku. Loomer skrifaði þá á samfélagsmiðla að Hvíta húsið „muni anga af karrýi“ ef Kamala Harris sigrar í kosningunum.
Hún hélt síðan áfram og gerði grín að indverskum símaverum.
Karine Jean-Pierra, fjölmiðlafulltrúi Joe Biden, forseta, segir ummæli Loomer vera „eitrað kynþáttahatur“ og meira að segja J.D. Vance, varaforsetaefni Trump, er ekki sáttur við þau. „Mér líka ekki þessi ummæli,“ sagði hann í samtali við NBC News.
Margir bandamenn Trump hafa lýst yfir áhyggjum af nánu sambandi hans við Loomer og óttast að ummæli hennar geti kostað hann atkvæði í sveifluríkjum á borð við Georgíu og Norður-Karólínu. Í þessum ríkjum búa margir kjósendur af indverskum uppruna.
En það er ekki bara kynþáttaníð Loomer sem vekur áhyggjur meðal bandamanna Trump, því samsæriskenningarnar þykja heldur ekki neinn kostur.
Loomer hefur meðal annars sagt að hryðjuverkaárásin á Bandaríkin þann 11. september 2001 hafi verið að undirlagi bandaríska stjórnvalda. Það vakti því að vonum mikla athygli þegar hún stóð við hlið Trump í Pennsylvania þegar þess var minnst að 23 ár voru liðin frá árásinni.