fbpx
Miðvikudagur 29.október 2025
Eyjan

Kosningaspá DV þremur dögum fyrir kjördag – miðjustjórn í kortunum

Eyjan
Miðvikudaginn 27. nóvember 2024 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DV.IS hefur tekið saman kosningaspá þremur dögum fyrir kjördag sem hér birtist. Spáin er unnin upp úr ýmsum upplýsingum og höfð hefur verið nokkur hliðsjón af birtum skoðanakönnunum, einkum könnunum Maskínu og Prósents. Auk þess hefur verið lagt mat á fyrirliggjandi staðreyndir og horfur.

Óvissan er mikil enn þá en talið er að stór hópur kjósenda, jafnvel 20 til 25 prósent, eigi enn eftir að ákveða sig. Sú kosningaspá sem hér er sett fram miðast við horfur eins og þær líta út núna þremur dögum fyrir kjördag.

Gangi þessi spá eftir og úrslit kosninga verða í líkingu við hana er mjög líklegt að mynduð verði þriggja flokka miðjustjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Framsóknar.

Samkvæmt spánni fengi Viðreisn 14 þingmenn kjörna en þeir kæmu þrír úr hvoru Reykjavíkurkjördæmanna, fjórir úr Suðvesturkjördæmi, tveir úr Suðurkjördæmi og einn úr hvoru norðurkjördæmanna. Samfylkingin fengi einnig 14 þingmenn kjörna. Þrír kæmu úr Reykjavík norður, tveir úr Reykjavík suður, fjórir þingmenn úr Suðvesturkjördæmi, einn úr Norðvesturkjördæmi, tveir úr Norðausturkjördæmi og tveir úr Suðurkjördæmi. Samkvæmt kosningaspá okkar fengi Framsókn sex þingmenn kjörna. Ásmundur Einar Daðason næði kjöri í Reykjavík norður og Willum Þórsson einnig í Suðvesturkjördæmi. Ráðherrarnir Sigurður Ingi Jóhannsson og Lilja Alfreðsdóttir næðu hins vegar ekki kjöri. Framsókn fengi einn mann kjörinn í Norðvesturkjördæmi, tvo í Norðausturkjördæmi og einn í Suðurkjördæmi.

DV mun freista þess að spá í það hvernig ráðuneytum yrði skipt milli þessara þriggja flokka ef til kæmi og hverjir yrðu valdir til að gegna ráðherraembættum. Birtar verða upplýsingar um það síðar í dag.

SPÁ DV UM ÚRSLIT ALÞINGISKOSNINGA ÞANN 30.NÓVEMBER 2024 OG SKIPTAN ÞINGSÆTA:

Viðreisn ………………… 20,5% ……….. 14 þingmenn
Samfylking ……………. 19,0% ………… 14 þingmenn
Sjálfstæðisflokkur … 16,0% …………. 11 þingmenn
Miðflokkur ……………. 12,0% ………….. 9 þingmenn
Flokkur fólksins …….. 10,5% …………. 7 þingmenn
Framsókn ……………….. 9,0% …….…… 6 þingmenn
Píratar ……………………. 4,5% ………….. 1 þingmaður
Sósíalistar ………………. 4,5% ………….. 1 þingmaður
Vinstri græn ……………. 3,0% ………..
Aðrir ………………………. 1,0% ………..

…………………………… 100,0% ………… 63 þingmenn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – missir Viðreisn fram úr sér

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – missir Viðreisn fram úr sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Benedikt Gíslason: Arion banki er minnsti kerfislega mikilvægi bankinn á Norðurlöndum – mikil tækifæri í sameiningu við Kviku

Benedikt Gíslason: Arion banki er minnsti kerfislega mikilvægi bankinn á Norðurlöndum – mikil tækifæri í sameiningu við Kviku
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Hólmar skrifar: Treystum fólkinu sem veit hvað það er að gera

Sigurður Hólmar skrifar: Treystum fólkinu sem veit hvað það er að gera
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem er á móti frjálsri fjölmiðlun

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem er á móti frjálsri fjölmiðlun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigurður Ingi mun ekki víkja – gildir einu hvað Guðni hamast

Orðið á götunni: Sigurður Ingi mun ekki víkja – gildir einu hvað Guðni hamast
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Við svona kannski höfum ákveðið

Þorsteinn Pálsson skrifar: Við svona kannski höfum ákveðið