Lögreglan var kölluð að næturklúbbi í miðborg Helsinki aðfaranótt föstudags eftir að skoti var hleypt af fyrir utan hann. Skömmu síðar var 54 ára karlmaður handtekinn.
Lögreglan hefur ekki viljað skýra frá nafni hans en finnskir fjölmiðlar segja engan vafa leika á að þetta sé Timo Vornanen sem hefur setið á þingi síðan í apríl 2023.
Harri Vuorenpää, ritari þingflokksins, staðfesti þetta á X. Hann skrifaði meðal annar á laugardagskvöldið að flokksbróðir hans hefði verið látinn laus úr haldi. „Við getum hvorki tekið þátt í rannsókninni né viljum við taka þátt í henni. Lögreglan sér um rannsóknina og við óskum henni góðs gengis,“ skrifaði hann.
Riikka Purra, formaður Sannra Finna, skrifaði á X að nú þurfi að gefa lögreglunni vinnufrið til að rannsaka málið. Hún sagði einnig að auk þeirrar refsingar sem þingmaðurinn kunni að verða dæmdur til, muni flokkurinn og þingflokkurinn afgreiða málið á viðeigandi hátt.
Vornanen sótti þingfund á fimmtudaginn og stóð fundurinn til klukkan tvö aðfaranótt föstudags. Að honum loknum fór hann með flokkssystkinum sínum á næturklúbbinn Ikhu en þar er boðið upp á karókí.
Um klukkan 03.30 er Vornanen sagður hafa lent í deilum við gest á staðnum. Ekki er vitað hvað þeir deildu um. En þegar þeir rákust á hvorn annan um hálfri klukkustund síðar fyrir utan klúbbinn færðist heldur betur fjör í leikinn.
Í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir að 54 ára karlmaður hafi dregið upp löglega og skráða skammbyssu, sem hann var með á sér, og hafi beint að fólki áður en hann hleypti einu skoti af í jörðina.