fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

easyJet flýgur beint frá London til Akureyrar

Eyjan
Fimmtudaginn 25. maí 2023 12:30

A320 airbus-vél í eigu easyJet Mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt stærsta flugfélag Evrópu, easyJet, mun fljúga beint frá Gatwick í London til Akureyrar næsta vetur í áætlunarflugi. Flugfélagið hefur nú þegar opnað fyrir bókanir, en fyrsta flugferðin verður 31. október. Flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum, út mars 2024.

Í tilkynningu frá félaginu eru 14 nýjar flugleiðir kynntar, þar sem ferðirnar til Akureyrar eru í brennidepli enda um glænýja leið að ræða í áætlunarflugi á Bretlandsmarkaði.

„Akureyri er höfuðstaður Norðurlands, sem býður upp á frábæra möguleika fyrir ferðamenn og er stutt frá aðdráttaröflum náttúru, menningar og sögu. Gestir geta notið hvalaskoðunar, farið í gönguferðir, fylgst með Norðurljósum eða farið í böð á sama tíma og þau njóta útsýnisins sem svæðið býður upp á,“ segir í tilkynningu frá easyJet.

Flugfélagið er í samstarfi við ferðaskrifstofuna easyjet Holidays og því verður einnig boðið upp á pakkaferðir til Norðurlands í tengslum við þessar flugferðir.

Samstarfsverkefnin spila lykilhlutverk

„Vetrarflug easyJet er árangur áralangrar undirbúningsvinnu og samstarfs, þar sem ótalmörg hafa lagt hönd á plóg. Þar spilar samstarfsverkefnin Flugklasinn Air66N og Nature Direct lykilhlutverk. Með tveimur flugum til London yfir vetrartímann verða til fjölmörg tækifæri fyrir norðlenska ferðaþjónustu, sem getur sýnt hversu öflug og samheldin hún er í því að gera Norðurland að eftirsóttum áfangastað. Það má segja að nýr áfangastaður sé að verða til fyrir Breta með þessum flugferðum, einmitt á þeim árstíma þar sem rólegra hefur verið í ferðaþjónustu. Að sama skapi verður til spennandi valmöguleiki fyrir ferðalög heimafólks og annarra atvinnugreina, bæði til Bretlands en einnig í tengiflugi í gegnum Gatwick.

Góð reynsla var af því vetrarflugi sem boðið var upp á yfir vetrartímann fyrir nokkrum árum beint frá Bretlandi til Akureyrar. Ferðaþjónusta á Norðurlandi hefur unnið vel í vöruþróun og markaðssetningu og það er nú að skila sér. Búast má við allt að 1500 gistinóttum á viku yfir vetrartímann með þessari nýju flugleið. Því má vænta þess að flug easyJet breyti þróun ferðaþjónustu á Íslandi með beinu aðgengi að Norður- og Austurlandi,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Árangur áralangrar vinnu

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, fagnar ákvörðun breska flugfélagsins. „Það er mikið gleðiefni að easyJet hafi ákveðið að hefja flug til Akureyrar í vetur. Við tökum vel á móti farþegum þeirra. Það er sérstaklega gaman að fá þessa auknu umferð nú þegar styttist í að viðbygging við flugstöðina verði tekin í notkun og öllum framkvæmdum á vellinum síðan lokið vorið 2024.“

Sem fyrr segir hefur Markaðsstofa Norðurlands verið í samtali við easyJet í langan tíma og má rekja það allt aftur til ársins 2014. Áhugi flugfélagsins hefur aukist jafnt og þétt en segja má að ýmsir stærri þættir hafi gert það að verkum að félagið tók ekki ákvörðun um að fljúga til Akureyrar fyrr en nú. Má þar nefna brotthvarf Breta úr ESB, heimsfaraldur Covid og uppbyggingu Akureyrarflugvallar sem stærstu áhrifaþættina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“