Eyjan

Segir auglýsingu á samkomulagi hafa verið senda út áður en bæjarráð samþykkti gjörning bæjarstjóra

Mynd
Ásdís Kristjánsdóttir og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir. Myndin er samsett.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, segir að skipulagsfulltrúi Kópavogs hafi sent auglýsingu um afgreiðslu bæjarstjórnar á breyttu deiliskipulagi umdeildrar lóðaúthlutunnar á Kársnesi til birtingar í stjórnartíðindum sama dag og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, undirritaði samkomulag um uppbyggingu við fjárfestana í Fjallasól. Samkomulagið var undirritað með fyrirvara um samþykki bæjarráðs sem þó fundaði ekki fyrr en tveimur dögum síðar. Vinnuferlið sýni fram á það að mati Sigurbjargar að samþykki bæjarráðs hafi verið „algjört aukaatriði“. „Ég skil varla til hvers við erum að eyða MILLJARÐI á kjörtímabili í kostnað vegna funda bæjarstjórnar og nefnda og ráða á vegum hennar þegar það er raunverulega bara ein sem ræður," skrifar Sigurbjörg í færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún vekur athygli á málinu.

Segir Ásdísi taka stórar ákvarðanir án samráðs

Lóðaúthlutunin vakti nokkuð umtal í síðustu viku

en Sigurbjörg Erla sakaði þar Ásdísi um að færa einum ríkustu systkinum landsins lúxuslóðir á silfurfati án útboðs. Um var að ræða reit á Kársnesi sem nefndur hefur verið Reitur 13 en þeim var úthlutað til fyrirtækisins Fjallasól sem er í eigu eigu MATA-systkinanna, Eggerts Árna, Guðnýjar Eddu, Gunnars Þórs og Halldórs Páls Gíslabarna, sem hafa meðal annars vakið athygli fyrir eignarhald sitt á Ölmu leigufélagi sem ítrekað hefur ratað í fréttir fjölmiðla fyrir gífurlegar hækkanir á leiguverði.

Gagnrýndi Sigurbjörg Erla þá stjórnsýslu að Ásdís bæjarstjóri hafði þegar undirritað samkomulagið með fyrirvara um samþykki bæjarráðs sem og að hún mætti ekki á fundinn til þess að kynna samkomulagið fyrir bæjarráði. Segir hún svo að hinar nýju upplýsingar um auglýsinguna í Stjórnartíðindunum sýni að afgreiðslan í bæjarráði hafi bara verið formsatriði.

„Þetta er svo sem bara enn eitt tilfelli þess að bæjarstjóri taki stórar ákvarðanir án þess að einu sinni ræða það við bæjarstjórn á undan – til dæmis með því að senda póst á Sorpu og tilkynna um að starfsstöðin skyldi víkja af Dalvegi á næsta ári, og gera samning við KPMG um úttekt á starfsemi menningarhúsanna sem leiddi meðal annars til þess að bæði héraðsskjalasafn og náttúrufræðistofa voru lögð niður,“ skrifar Sigurbjörg Erla í áðurnefndri færslu.

Fulltrúar minnihlutans voru mjög óhressir með að geta ekki spurt Ásdísi út í málið á fundi bæjarráðs en þau hafa lagt fram ítarlega fyrirspurn í fjórtán liðum þar sem kallað er eftir frekar upplýsingum.

Stóðu vörð um hagsmuni bæjarbúa

Ásdís útskýrði sína hlið málsins á þá leið að minnihlutinn hafi slitið málið úr samhengi. Sagði hún að málið hefði verið vandlega unnið, farið yfir allar forsendur og tryggt hafi verið að marksverð fékkst fyrir lóðina. „Úthlutun á ákveðnum lóðum við Reit 13 á Kárs­nesi til Fjallsól­ar ehf. án aug­lýs­ing­ar var nauðsynlegt vegna skör­un­ar bæj­ar­lands og fast­eigna í eigu fé­lags­ins, og tryggja þannig heild­stæða upp­bygg­ingu á reitn­um,“ skrifaði Ásdís í færslu þar sem hún fór yfir málið.

Sagði hún að öðrum lóðum bæjarins, meðal annars á umræddu svæði, yrði úthlutað í gegnum auglýsingar sem sé meginregla hjá Kópavogbæ

„Þá gengur sú afstaða minnihlutans að skipulagið færi í auglýsingu áður en samkomulagið var undirritað gegn hagsmunum bæjarbúa. Ef sú leið hefði verið farin hefði staða bæjarins verið veikari fyrir vikið. Nauðsynlegt var að ganga frá sam­komu­lagi við lóðar­hafa um bygg­ing­ar­rétt­ar­gjald áður en deili­skipu­lagið færi í aug­lýs­ingu þannig að tryggt væri að lóðarhafar taki þátt í kostnaði á innviðaupp­bygg­ingu á svæðinu. Hér er því einfaldlega verið að standa vörð um hagsmuni bæjarbúa,“ sagði Ásdís.