fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Vekra, móðurfélag Öskju, kaupir Dekkjahöllina

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 2. ágúst 2023 10:19

Elín Dögg Gunnars Väljaots, Jón Trausti Ólafsson og Kristdór Gunnarsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vekra hefur gengið frá samningi um kaup á öllu hlutafé Dekkjahallarinnar. Kaupin eru þó háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Dekkjahöllin er rúmlega 40 ára fyrirtæki, stofnað árið 1982, með höfuðstöðvar á Akureyri. Félagið er innflutningsaðili hjólbarða og eru helstu vörumerki þess Yokohama, Falken, Sonar og Triangle. Félagið rekur fjórar starfsstöðvar, á Akureyri, Egilsstöðum og tvær í Reykjavík, í Skútuvogi og í Skeifunni.

Dekkjahöllin hefur verið fjölskyldufyrirtæki og er fjöldi starfsmanna um 30-40 talsins að jafnaði. Vekra er eignarhaldsfélag og er félagið meðal annars móðurfélagi Bílaumboðsins Öskju sem er umboðsaðili Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart, Sleggjunnar sem er sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla, Lotus sem er bílaleiga og Hentar sem einbeitir sér að langtímaleigu. Ársvelta Vekru var um 25 milljarðar árið 2022 og starfsmenn félagsins ríflega 200 talsins.

Það eru stór tímamót hjá okkur í fjölskyldunni að selja rekstur Dekkjahallarinnar sem pabbi okkar, Gunnar Kristdórsson, stofnaði í bílskúrnum heima hjá okkur árið 1982. Það er þó mjög ánægjulegt að horfa til baka og sjá hve öflugt fyrirtæki honum og fjölskyldu hans hefur tekist að skapa. Nú er þó komið að tímamótum og við sjáum félagið verða samstarfsaðili öflugra fyrirtækja og við erum viss um að Dekkjahöllin verður í góðum höndum til framtíðar hjá Vekru sem hefur byggt upp afar farsæl fyrirtæki  á undanförnum árum og þá horfum við sérstaklega til Öskju sem er þekkt fyrir góða þjónustu.

Við Kristdór, bróðir minn munum áfram starfa með nýjum eigendum Dekkjahallarinnar og horfum björtum augum til samstarfsins, ég verð á Akureyri með þeim góða hóp sem hér hefur starfað, og Kristdór mun áfram stýra starfsemi okkar á Egilsstöðum. Gildi Dekkjahallarinnar er góð, fagleg og persónuleg þjónusta og við finnum fyrir ríkum stuðningi nýrra eigenda við að svo verði áfram,“ segir Elín Dögg Gunnars Väljaots, fjármálastjóri Dekkjahallarinnar.

Hlutverk okkar í Vekru er að standa vel að baki okkar rekstrarfélögum og ná fram samlegð í rekstri þeirra og um leið að byggja upp góða þjónustu við viðskiptavini með öflugum vörumerkjum. Dekkjahöllin fellur vel að okkar framtíðarsýn. Hjólbarðaþjónusta er órjúfanlegur hluti af bílaviðskiptum og -þjónustu og enn frekar til framtíðar þar sem rafbílar eru að taka yfir sem ráðandi orkugjafi.

Dekkjahöllin á sér góða sögu um þjónustu og er landsbyggðarfélag sem við kunnum vel að meta. Við horfum því björtum augum til framtíðar og erum þakklát því trausti sem okkur er falið að taka við eignarhaldi félagsins. Stjórnendur þess, sem eru alin upp í Dekkjahöllinni, munu starfa með okkur áfram og við vonumst til að geta lagt þeim lið í að gera gott fyrirtæki enn betra.“ Höfuðstöðvar félagsins verða áfram á Akureyri þar sem stærsta starfstöðin er staðsett,“ segir Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Vekru og framkvæmdastjóri Öskju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki