fbpx
Fimmtudagur 20.nóvember 2025
Eyjan

Lilja Rafney skrifar: Vér mótmælum öll!

Eyjan
Föstudaginn 14. júlí 2023 11:00

Lilja Rafney Magnúsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú þegar Strandveiðarnar eru sigldar í strand með einu pennastriki ráðherra og stöðvaðar yfir hábjargræðistímann, þegar allt er vaðandi af þorski á grunnslóð þá er ekki skrítið að sjómenn rísi upp og mótmæli við Alþingishúsið á laugardaginn aðgerðarleysi stjórnvalda við að efla og tryggja Strandveiðar í 48 daga!

Vilji er allt sem þarf

Mér, sem leiddi þá þverpólitísku vinnu á síðasta kjörtímabili að endurskoða Strandveiðikerfið með það að leiðarljósi að auka öryggi og tryggja öllum hvar sem er á landinu 48 daga, svíður það sárt að horfa upp á getu- og viljaleysið við að tryggja aflaheimildir í 48 daga út ágúst og að þetta sé í fyrsta skiptið þegar þörf hefur verið til að engu sé bætt við Strandveiðipottinn!

Þannig týnist tíminn

Það hefur margsinnis verið bent á leiðir sl. 2 ár hvernig hægt sé að forgangsraða aflaheimildum innan félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins án þess að það komi niður á vísindalegri ráðgjöf Hafró. Bent hefur verið á t.a.m. að aflaheimildir til byggðakvóta og VS-afli í þorski hafi ekki verið fullnýttar og að stór hluti byggðakvóta renni til stórútgerða sem tilgangurinn er ekki með heldur ætti frekar að fara til Strandveiða.

Strandveiðar eru ekki hobbí

Það gera sér kannski ekki allir grein fyrir því hve stór þáttur Strandveiðar eru í atvinnu- og menningu minni sjávarbyggðanna sem má ekki glatast og hverfa inn í enn frekari samþjöppun stórútgerðanna. Þau sem stunda strandveiðar eiga ekki að þurfa að koma með betlistaf hverju sinni til stjórnvalda til að réttlæta tilveru sína og biðja um að fá að veiða á handfæri í 48 daga á ári. Nú er skellt í lás og fleiri hundruð manns gerðar atvinnulaus með tilheyrandi afleiðingum fyrir fólkið og sjávarbyggðirnar!

Forgangsröðum

Vísindaleg ráðgjöf er eitt en það er ráðherra hverju sinni hvernig hann vinnur úr henni og hvort hann forgangsraði í þágu smærri útgerða sem hafa ekki þol fyrir mikla ágjöf og hafa lítið í stórútgerðirnar að gera sem komnar eru með stærstan hluta allra veiðiheimilda og lítið bólar á rannsókn stjórnvalda hvort einhverjar séu komnar yfir leyfileg kvótaþök!

Áhersla SÞ á mannréttindi og vistvænar veiðar

Strandveiðar eru umhverfisvænustu veiðar sem til eru og SÞ lögðu í fyrra áherslu á sjálfbærar veiðar með sérstaka áherslu á handfæraveiðar. Strandveiðum var komið á af VG 2009 í kjölfar úrskurðar Mannréttindanefndar SÞ frá 2007 og kominn tími til að tryggja öllum að lágmarki öruggar heimildir fyrir 48 daga! Ég vil ekki trúa öðru en að VG sýni nú viljann í verki og efli Strandveiðar og hlusti á ákall strandveiðisjómanna.

Mér rennur blóðið til skyldunnar

Aðflutt kona sem róið hefur á Strandveiðum í sumar frá Suðureyri spurði mig á dögunum af hverju ég hefði svona mikinn áhuga á Strandveiðum. Ég klóraði mér í hausnum og sagði: „Ætli mér renni ekki blóðið til skyldunnar að berjast fyrir því að tryggja áfram að komandi kynslóðir geti sótt sjóinn og skapað sér tekjur í sjávarþorpunum sem hafa getað nýtt þessa auðlind sína kynslóð fram af kynslóð án þess að vera öðrum háð og getað eignast bát án þess að eiga hlut í banka.“

Ég stend því heilshugar með baráttu strandveiðisjómanna nú sem fyrr og vona að sem flestir leggist á árar með þeim í baráttunni fyrir réttlátum skerfi af sameiginlegri sjávarauðlind þjóðarinnar !

Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður VG, Suðureyri, Súgandafirði.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Miðflokkur á flugi, miklar breytingar í borgarstjórn – enn má Sjálfstæðisflokkurinn bíða

Orðið á götunni: Miðflokkur á flugi, miklar breytingar í borgarstjórn – enn má Sjálfstæðisflokkurinn bíða
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir: Öllum er nákvæmlega sama um Sjálfstæðisflokkinn – hann hefur ekkert að segja

Kolbrún Bergþórsdóttir: Öllum er nákvæmlega sama um Sjálfstæðisflokkinn – hann hefur ekkert að segja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Guðni Ómarsson: Lánin óhagstæðari ef vextir eru festir út lánstímann

Jón Guðni Ómarsson: Lánin óhagstæðari ef vextir eru festir út lánstímann
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Tilkynna um flug milli Íslands og Montreal

Tilkynna um flug milli Íslands og Montreal
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera