Sólveig Anna Jónsdóttir segir ákvörðun Samtaka atvinnulífsins (SA) um að félagsmenn samtakanna kjósi um verkbann gegn Eflingu bæði vanstillta og svívirðilega. Þetta kemur fram í frétt RÚV, en þar tók Sólveig Anna fram að ríkur samningsvilji hafi verið í samninganefnd Eflingar þegar viðræðum var slitið og hafi Efling jafnvel fallið frá framfærsluuppbótinni sem SA höfðu harðlega gagnrýnt.
„Við vorum að vinna innan ramma kostnaðar Samtaka atvinnulífsins varðandi samninga þeirra við önnur félög, við höfðum fallið frá framfærsluuppbótinni, það var ekki lengur verið að ræða hana. Svo gerist það að tóninn hjá Samtökum atvinnulífsins hann harðnar mjög að nýju,“ sagði Sólveig Anna sem sagðist um tíma um helgina hafa vonast til að samningar væru að fara að nást.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir þó að samtökin hafi reynt allt til að ná samningum en það hafi engan árangur borið og því séu samtökin neyðbeygð til að grípa til verkbanns.
Verkfallssjóður Eflingar er sagður standa í um þremur milljörðum króna í dag og miðað við að hver félagsmaður fengi 25 þúsund krónur á dag á hverjum degi verkbannsins yrði sjóðurinn fljótur að tæmast.