Farsímafyrirtækið Vodafone hefur sent tilkynningar til sinna viðskiptavina um að kostnaður við símtöl og SMS frá Íslandi til Tyrklands og Sýrlands verði felldur niður fyrir febrúar mánuð.
„Heimurinn er harmi sleginn yfir þeim hörmungum sem jarðskjálftinn hefur valdið í Tyrklandi og Sýrlandi. Til að létta aðstandendum og hjálparliðum samskipti við ástvini og viðbragðsaðila hefur Vodafone ákveðið að fella niður gjöld á símtölum og SMS skilaboðum til Tyrklands og Sýrlands fyrir febrúar mánuð. Vegna álags á samskiptainnviði á hamfarasvæðinu biðlum við til viðskiptavina að senda SMS svo að hjálparaðilar hafi greiðan aðgang að kerfinu,“ segir Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðsmála hjá Vodafone.
„Við vonum að þetta framlag hjálpi viðskiptavinum okkar að tengjast ástvinum sínum á þessum erfiðu tímum,“ bætir Sesselía við.