Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að „forréttinda-mennirnir“ í íslensku samfélagi séu tilbúnir að gera allt, nema það eitt að borga láglaunafólki mannsæmandi laun.
Þetta skrifar hún á Facebook í tilefni fregna um að Samtök atvinnulífsins (SA) muni bæta Íslandshótelum allt það tjón sem hlytist af mögulegu verkfalli Eflingar.
Sólveig skrifar:
„Hugsið ykkur ef að ríku mennirnir sem ráða þessu landi og lifa í vellystingum myndu verða við kröfum samninganefndar Eflingar um að láglaunafólk, arðrænt kven-vinnuafl hótelanna sem skapar auðinn sem þeir svo hirða, fengi að lifa frjálsara undan endalausum fjárhagsáhyggjum, í stað þess að opinbera sig í sífellu sem menn sem fyrirlíta ekkert meira en verkakonur íslensks vinnumarkaðar?“
Sólveig segir að þetta sé þó staðan á Íslandi, sem gjarnan sé kallað jafnréttisparadís.
„Forréttinda-mennirnir eru tilbúnir að gera bókstaflega allt annað en að borga stritandi konum mannsæmandi laun. Og í stað þess að styðja við baráttu Eflingar fyrir jöfnuði og sanngirni stendur stjórnmálastéttin sameinuð að baki hinum voldugu mönnum, í aumkunarverðri undirgefni við auðstéttina. Og ekki heyrist eitt stuðningsorð frá verkalýðsleiðtogum landsins, hvorki mönnum né konum.
Það er ekkert annað en ógeðslegt að verða vitni að þessu helsjúka ástandi.“
Sólveig segir að samninganefnd Eflingar muni þó hafa sigur í sinni baráttu, það sé öruggt. Mögulega muni svo sá dagur koma að til valda komist fólk sem hefur samhygð og sanngirni að leiðarljósi fremur en persónulega framasýki og auðmýkt gagnvart auðvaldinu.