Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag í umfjöllun um niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem Prósent gerði.
Fram kemur að 71,6% svarenda styðji aðild að NATÓ en 11% eru á móti aðild. 17,3% hafa ekki skoðun á málinu.
Vinstri græn hafa að stefnu að Ísland segi sig úr NATÓ. Í því ljósi er er mjög athyglisvert að 53% kjósenda flokksins styðja aðild að NATÓ. Af þeim eru 20% mjög hlynnt aðild. 23% eru henni andvíg og 24% hafa ekki skoðun á málinu.
Í stefnu Sósíalistaflokksins kemur fram að mynda eigi friðarbandalag í samvinnu við nágrannaríki og smáþjóðir og verði það valkostur við NATÓ. 47% kjósenda flokksins styðja aðild að NATÓ en 40% eru á móti henni. 28% eru mjög andvíg aðild.
Kjósendur Viðreisnar eru þeir sem eru hlynntastir aðild að NATÓ en 93% þeirra styðja aðild og 4% eru á móti.
Nánar er hægt að lesa um málið í Fréttablaðinu í dag.