fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Mun Trump koma í veg fyrir inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í NATÓ?

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 8. maí 2022 17:00

Fáni NATO. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og staðan er núna er allt útlit fyrir að Finnland og Svíþjóð muni sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu, NATÓ, á næstu vikum. En getur hugsast að Donald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseti, muni koma í veg fyrir að ríkin fái aðild að varnarbandalaginu?

Eins og kunnugt er er Trump efins um tilganginn með NATÓ og hann hefur löngum þótt ansi vinsamlegur í garð Vladímír Pútíns, Rússlandsforseta, sem sendi nýlega herlið inn í Úkraínu.

Reiknað er með að ríkisstjórnir Finnlands og Svíþjóðar taki ákvörðun nú í maí um hvort sótt verði um aðild að NATÓ. Almennt er talið að ríkjunum verði tekið opnum örmum af þeim 30 ríkjum sem nú mynda bandalagið. En ekkert er öruggt í þessum efnum og telja sumir að Trump geti orðið fyrirstaða.

En hvernig þá? Hann er ekki lengur forseti og hvernig getur hann þá haft áhrif á málið?

Til að nýtt ríki sé tekið inn í NATÓ þurfa öll aðildarríkin að samþykkja umsókn þess. Í Bandaríkjunum þurfa tveir þriðju allra öldungadeildarþingmanna að samþykkja slíka umsókn. Þar eru valdahlutföllin hnífjöfn því báðir flokkar, Demókratar og Repúblikanar, hafa 50 þingmenn. Demókratar hafa þó meirihluta því Kamala Harris, varaforseti, fer með oddaatkvæði ef atkvæði falla jafnt í atkvæðagreiðslum í deildinni.

Opinberlega hafa þingmenn úr báðum flokkum lýst yfir stuðningi við aðild Finna og Svía. En það er engin trygging fyrir að ríkin fái aðild. Ástæðan er að Trump hefur góða stjórn á Repúblikanaflokknum og því eru fleiri efasemdaraddir uppi innan hans um NATÓ en nokkru sinni áður.

Í Bandaríkjunum hafa þær áhyggjur verið viðraðar að Trump, sem er talinn ætla sér í forsetaframboð 2024, muni leggjast gegn aðild Finna og Svía opinberlega. Hann muni hugsanlega færa þau rök fyrir þessu að óþarfi sé að styggja ráðamenn í Moskvu.

Aaron Blake, sem er þekktur greinandi hjá Washington Post, segir í greiningu á málinu að umsóknir frá Finnlandi og Svíþjóð um aðild að NATÓ geti valdið ólgu innan Repúblikanaflokksins. Hann leggur áherslu á að ekki sé enn vitað hvort Trump muni reyna að fá flokkssystkini sín til að hafna aðild ríkjanna en ef hann geri það geti það valdið óróleika innan flokksins.

Þegar öldungadeildin greiddi atkvæði um stuðning sinn við NATÓ árið 2018, þegar Trump sótti leiðtogafund NATÓ í Brussel, féllu atkvæðin 97-2 NATÓ í vil.

Í apríl greiddi fulltrúadeildin atkvæði um stuðning Bandaríkjanna við NATÓ í ljósi innrásar Rússa í Úkraínu. Þá greiddu 63 þingmenn Repúblikana, rúmlega 30% þingmanna flokksins, atkvæði gegn ályktuninni sem kvað á um stuðning við NATÓ og „lýðræðisgildi bandalagsins“.  Meðal þeirra röksemda sem sumir Repúblikananna settu fram fyrir andstöðu sinni voru að NATÓ hefði ögrað Pútín og orðið til þess að Rússar réðust inn í Úkraínu, að Bandaríkin beri ekki ábyrgð á öryggi Evrópu og að Rússland sé ekki verra en Bandaríkin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“