fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Mælirinn fylltist hjá Kristófer þegar hann sá ummæli Vilhjálms – Segir að hann sé að kalla eftir aukinni verðbólgu

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 1. júlí 2022 13:15

Til vinstri: Kristófer Már Maronsson, mynd/Haakon Broder Lund - Til hægri: Vilhjálmur Birgisson, mynd/Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði í samtali við Vísi í gær að bankakerfið og stjórnvöld ættu að veita fyrstu kaupendum fasteigna óverðtryggð lán til lengri tíma en 40 ára. Nefndi hann sem dæmi að það ætti að veita lánin til 50, 60 eða 70 ára.

„Til þess að létta greiðslubyrðina í upphafi, og síðan er hægt að stytta lánstímann eftir að greiðslugeta viðkomandi einstaklings eykst,“ sagði Vilhjálmur.

Falleg hugsun sem gengur ekki upp

Hagfræðingurinn Kristófer Már Maronsson er ekki á því að það myndi ganga upp þó svo að honum finnist hugsun Vilhjálms vera falleg. Þegar Kristófer las frétt Vísis í gær fylltist mælirinn hjá honum og ákvað hann þá að draga fram lyklaborðið og skrifa pistil um málið sem birtist á Vísi í dag.

„Reglulega langar manni að tryllast á takkaborðinu þegar að maður les fréttir dagsins, þó sjaldan gefist tími til – en stundum fyllist mælirinn,“ segir Kristófer í opinni færslu á Facbook-síðu sinni er hann deilir pistlinum sem um ræðir.

Kristófer segir í pistlinum að þrátt fyrir að hugsun Vilhjálms sé falleg þá sé hann að gleyma stóra samhenginu.

„Er það ábyrgðarfull stefna stjórnvalda að vinna gegn aðgerðum Seðlabankans til að hemja verðbólgu? Það sem meira er, fyrstu kaupendur hafa nú þegar tækifæri fyrstu 10 árin til þess að lækka greiðslubyrði sína með stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Það er áhyggjuefni að fólk sem situr við kjarasamningaborðið sé hvorki með grunnhagfræði né úrræði fyrstu kaupenda á hreinu,“ segir Kristófer í pistlinum.

Kristófer talar þá um lög um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð sem tóku gildi árið 2017. Lögin gera fyrstu kaupendum kleift að nota séreignarsparnað sinn til þess að greiða inn á höfuðstól láns til þess að hraða eignamyndun eða greiða hluta af afborgun lánsins í 10 ár, með því er hægt að lækka mánaðarlega greiðslubyrði.

„Einstaklingur með 500 þús kr. mánaðarlaun getur þannig greitt 30 þúsund krónur af afborgun sinni, eða hjón 60 þúsund krónur, með séreignarsparnaði fyrsta árið og lækkar talan svo um 10% af upphaflegri fjárhæð árlega,“ segir Kristófer.

„Ég tek undir með Vilhjálmi og fagna því að fólk geti tekið óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum. Því fleiri sem eru með óverðtryggð breytileg lán, því betur virka stýrivextir til þess að kæla eða örva hagkerfið. En það er eðli breytilegra vaxta, að greiðslubyrði aukist við vaxtahækkun og minnki við vaxtalækkun – það ætti ekki að koma neinum lántaka á óvart og við því var varað þegar vextir voru í lágmarki. Þegar Seðlabankinn telur nauðsynlegt að draga úr peningamagni í umferð til þess að berjast gegn verðbólgu, sem er drifin áfram af hærri útgjöldum heimilana án tillit til þess hvað orsakar hærri útgjöld, bítur stýrivaxtahækkun beint í veski heimila með breytileg óverðtryggð lán. Þá þarf að bregðast við með minni neyslu, auknum tekjum eða ganga á sparnað.“

„Líka hægt að axla ábyrgð og spara fyrir mögru árin“

Kristófer segir að hægt sé að fara ýmsar leiðir til þess að bregðast við hærri vöxtum. „Til dæmis að minnka afþreyingu, ferðalög, áskriftir eða finna sér aukavinnu. Það er líka hægt að axla ábyrgð og spara fyrir mögru árin þegar vextir eru lágir og lífskjör eru góð, því góðærið varir ekki að eilífu og vextir munu sveiflast í framtíðinni,“ segir hann.

„Ef að bankakerfið og stjórnvöld myndu fara í þær aðgerðir sem að Vilhjálmur nefnir, þá virkar ekki stýritækið sem Seðlabankinn beitir hvað oftast í baráttunni gegn verðbólgu. Afleiðingarnar birtast í enn hærri stýrivöxtum og/eða þrálátari verðbólgu sem leiðir líklega til kaupmáttarrýrnunar þeirra sem síst mega við því.“

Þá útskýrir Kristófer hvers vegna verðbólga verður til hann segir hana verða til af ýmsum ástæðum. „Ein helsta ástæða verðbólgu eru launahækkanir umfram framleiðniaukningu. Forsendan fyrir hærri launum er að hver starfsmaður skapi meira virði en áður í samræmi við hærri laun. Framleiðniaukning getur líka orðið til með betri tækni. Það var á árum áður þjóðaríþrótt okkar að hækka laun langt umfram framleiðniaukningu, með tilheyrandi verðbólgu og gengisfellingum,“ segir hann.

„Sem betur fer hefur slíkt minnkað, en við hækkum laun hraðar en önnur ríki þó við höfum náð með ótrúlegum hætti að auka kaupmátt jafnt og þétt undanfarin ár. Það er erfitt að spila þann leik að eilífu, verkalýðshreyfingin verður að átta sig á hlutverki sínu í tengslum við aukna verðbólgu og bera hluta af ábyrgðinni í stað þess að reyna að varpa henni alfarið annað, þó að hún sé alls ekki eini skúrkurinn. Launahlutfall íslenskra fyrirtækja er með því hæsta sem gerist, af því getum við að vissu leyti verið stolt – en sífellt færri störf spyrja um landamæri og tæknin leysir enn fleiri störf en áður. Árangur kjarasamninga er ekki mældur í krónutöluhækkunum, heldur verða þeir að snúast um aukinn kaupmátt eða aukin lífsgæði og raunhæfar kröfur.“

Segir fjölmiðla verða að taka sér stöðu varnarmanns

Undir lok pistilsins gagnrýnir Kristófer fjölmiðla á Íslandi en hann segir að svo virðist vera sem ekki séu margir góðir fjölmiðlamenn eftir hér á landi. „Flesta skortir þor eða þekkingu til þess að spyrja viðmælendur gagnrýnna spurninga um málefnin sem fjallað er um. Íslensk fjölmiðlun snýst að mestu leyti um fjöldaframleiðslu frétta til þess að fá sem flesta smelli. Krassandi fyrirsögn er best, oftar en ekki algjörlega samhengislaus þegar fréttin er lesin,“ segir hann.

„Þetta er ógnvænleg þróun og til þess fallin að almenningur verður illa upplýstur um málefni líðandi stundar. Fólk í valdamiklum stöðum á ekki að komast upp með að segja hvað sem er án þess að fjölmiðlafólk spyrji nánar út í það og reyni að upplýsa almenning um staðreyndir málsins. Þá geta þeir allt eins rétt viðmælendum gjallarhorn, slíkt ætti að kalla tilkynningar frekar en fréttir.“

Kristófer botnar pistilinn með því að segja að hvort sem fólki líki það betur eða verr þá þurfi andstæð sjónarmið að ná sameiginlegri niðurstöðu til þess að hægt sé að verja lífskjör þess.

„Samsetning húsnæðislána hefur mikið um það að segja hversu mikil áhrif stýrivextir hafa á einkaneyslu, kjarasamningar hafa áhrif á verðbólgu sem aftur hefur áhrif á ákvarðanatöku Seðlabankans um stýrivexti. Þá spila fjölmiðlar lykilhlutverk í almenningsumræðunni. Þegar valdamiklir viðmælendur reyna að sóla almenning með vanþekkingu eða popúlisma verða fjölmiðlar að taka sér stöðu varnarmanns og passa að lýðræðið byggi ekki á misvísandi upplýsingum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki