fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Svona stillir Sósíalistaflokkurinn upp í Reykjavík suður – Katrín Baldursdóttir í efsta sætinu – María Lilja og Bára á lista

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 3. ágúst 2021 10:56

Mynd/Sósíalistaflokkurinn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sósíalistaflokkurinn hefur nú sent út lista sinn í Reykjavíkurkjördæmi suður. Katrín Baldursdóttir, atvinnulífsfræðingur, blaðamaður og kennari, skipar fyrsta sæti flokksins í kjördæminu en það var slembivalinn hópur félaga í flokknum sem raðaði á listann. 

„Þetta er fjölbreyttur listi og kraftmikill. Fólk sem vill breyta samfélaginu þannig að allir hafi tækifæri til blómstra, hafi öruggt og gott húsnæði og góð laun. Það þarf að útrýma fátækt og það strax. Burt með alla kúgun og ofbeldi bæði gagnvart fólki og náttúru og inn með kærleika, samkennd, samvinnu og mannhelgi.“ segir Katrín Baldursdóttir um listann.

„Sósíalistaflokkurinn hefur brýnt erindi. Að fólk sé ekki valdalaust í höndum stórkapítalista. Fólk á að hafa tækifæri til að taka þátt í sköpun og smíði samfélagsins og hafa aðgang að gjaldfrjálsu heilbrigðis-og menntakerfi. Við á listanum í Reykjavík suður munum berjast af einurð fyrir þessu og mörgum öðrum réttlætismálum eins og að auðlindir verði færðar almenningi.“

Símon Vestarr, bókmenntafræðingur, kennari og tónlistarmaður vermir annað sæti flokksins í kjördæminu. Stefna hans í stjórnmálunum er skýr. „Kapítalismi elur af sér auðsöfnun, auðsöfnun elur af sér spillingu, spilling kæfir lýðræði og að reyna að stemma stigu við spillingu án þess að setja kapítalismanum skorður er eins og að reyna að vinna körfuboltaleik með hendur bundnar fyrir aftan bak. Þess vegna þarf að kalla hlutina sínum réttu nöfnum og takast á við auðvaldið af fullum krafti,“ segir hann.

María Lilja Þrastardóttir Kemp, aktívisti og laganemi, er í þriðja sæti flokksins í kjördæminu. „María hefur verið áberandi í feminískri baráttu síðustu ára og stofnaði meðal annars Druslugönguna. María bjó í Englandi um skeið en kom heim til Íslands á síðasta ári ásamt fjölskyldu sinni, sambýlismanni, börnum og hundi. Síðan þá hafa málefni flóttafólks verið henni ofarlega í huga,“ segir um Maríu í tilkynningu frá flokknum.

„Mér finnst löngu orðið ljóst að Útlendingastofnun og lögregla þjónusta ekki einstaklinginn en ganga þess í stað erinda rótgróinna hægri-pólitískra afla sem hafa það eitt markmið að viðhalda hinu kapítalíska kerfi á kostnað almennings og það sama á við um aðrar stjórnsýslustofnanir sem fara með mál okkar viðkvæmustu hópa,“ segir María.

Það vakti athygli í vikunni þegar Bára Halldórsdóttir, sem er hvað þekktust sem uppljóstrarinn í Klausturs-málinu, tilkynnti að hún væri að gefa kost á sér á lista Sósíalistaflokksins. Bára situr í níunda sæti listans.

Hér fyrir neðan má sjá lista Sósíalistaflokksins í kjördæminu í heild sinni:

1. Katrín Baldursdóttir, atvinnulífsfræðingur
2. Símon Vestarr Hjaltason, kennari
3. María Lilja Þrastardóttir Kemp, laganemi
4. Jón Kristinn Cortez, tónlistarmaður
5. Ása Lind Finnbogadóttir, framhaldsskólakennari
6. Jón Óskar Hafsteinsson, myndlistarmaður
7. Sigrún Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
8. Halldóra Jóhanna Hafsteinsdóttir, frístundaleiðbeinandi
9. Bára Halldórsdóttir, öryrki
10. Bárður Ragnar Jónsson, þýðandi
11. Ellen Kristjánsdóttir, tónlistarmaður
12. Björn Reynir Halldórsson, sagnfræðingur
13. Krummi Uggason, námsmaður
14. María Sigurðardóttir, leikstjóri
15. Tamila Gámez Garcell, kennari
16. Elísabet Einarsdóttir, öryrki
17. Kristjana Kristjánsdóttir, leikskólakennari
18. Daníel Örn Arnarsson, varaborgarfulltrúi
19. Mikolaj Cymcyk, námsmaður
20. Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor
21. María Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og öryrki
22. Andri Sigurðsson, hönnuður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun