fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Efling sakar ASÍ um að taka þátt í „tækifærissinnaðri sérhagsmunagæslu“ Icelandair

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 17. september 2020 17:55

Samsett mynd - Icelandair, Drífa Snædal formaður ASÍ og Sólveig Anna formaður Eflingar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar greindi frá því fyrir skömmu að stjórn félagsins hefði ályktað gagn Alþýðusambandi Íslands í dag, vegna þess hvernig það hefði tekið á máli Icelandair og Samtaka atvinnulífsins.

„Stjórn Eflingar fundaði í dag. Á fundinum var þessi ályktun samþykkt. Ég er því mjög fegin að félagar mínir í stjórn séu sammála afstöðu minni í þessu erfiða máli.“

Í yfirlýsingu sem að Sólveig birti kemur fram að ASÍ hafi beðið álitshnekki að mati stjórnar Eflingar. Því er haldið fram að ASÍ hefði átt að draga Icelandair og Samtök atvinnulífsins til fullrar ábyrgðar vegna brota þeirra. Með því að sleppa því hafi Así ekki staðið vörð um réttindi launafólks. Þá er sambandið sakað um að taka þátt í „tækifærissinnaðri sérhagsmunagæslu einkafyrirtækis“.

Yfirlýsingu Eflingar má lesa hér að neðan:

„Stjórn Eflingar lýsir andstöðu við þátttöku Alþýðusambands Íslands í yfirlýsingu sem undirrituð var við Icelandair og Samtök atvinnulífsins og birt í dag 17. september 2020.

Stjórn Eflingar gagnrýnir harðlega að Alþýðusambandið hafi tekið þátt í að hvítþvo brot Icelandair og Samtaka atvinnulífsins á vinnumarkaðslöggjöfinni frá því fyrr í sumar með því að kalla þau „brot á samskiptareglum“.

Umrædd yfirlýsing veitir enga lagalega vernd eða tryggingu gegn því að önnur fyrirtæki muni síðar beita sömu aðförum.

Alþýðusamband Íslands átti að draga Icelandair og Samtök atvinnulífsins til fullrar ábyrgðar fyrir Félagsdómi vegna brota þeirra líkt og áður var samþykkt í miðstjórn ASÍ. Þannig hefði verið staðinn sómasamlegur vörður um réttindi launafólks.

Stjórn Eflingar gagnrýnir að miðstjórn Alþýðusambands Íslands taki með þessum hætti þátt í tækifærissinnaðri sérhagsmunagæslu einkafyrirtækis.

Ásetningur Samtaka atvinnulífsins um að grafa undan íslenskri vinnumarkaðslöggjöf er öllum kunnur og er umrædd yfirlýsing ósigur í baráttu verkalýðshreyfingarinnar gegn því.

Alþýðusamband Íslands hefur að mati stjórnar Eflingar beðið álitshnekki.“

https://www.facebook.com/solveig.a.jonsdottir/posts/10223658991480362

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt