fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Erlendir ferðamenn skiluðu 11 til 13 milljörðum í sumar – Innlend neysla bætti upp tekjutapið

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 15. september 2020 15:41

Farþegar á Keflavíkurflugvelli Mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Starfshópur hefur skilað skýrslu um áhrif  kórónuveirufaraldursins og sóttvarna á efnahagslífið. Starfshópinn skipa Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Í skýrslu hópsins kemur meðal annars fram að tekjur ferðaþjónustunnar dragast saman um 60% fyrstu níu mánuði ársins. Þann hluta sumarsins þegar sem vægari aðgerðir á landamærum voru í gildi og hægt var að komast inn í landið án þess að fara í sóttkví, en vera skimaður á Keflavíkurflugvelli, þá voru tekjur af erlendum ferðamönnum 11 til 13 milljarðar. Þetta tímabil var frá 15. júní til 19. ágúst.

Einkaneysla tók vel við sér eftir að faraldurinn gaf eftir í vor og slakað var á samkomubanni snemma í maí. Talið er að vöxtur í tekjum þjóðarbúsins af innlendri einkaneyslu eftir að slakað var á samkomubanni hafi verið svipaður að stærð og samdráttur í þjóðartekjum vegna minni einkaneyslu á meðan samkomubanninu stóð.

Hópurinn segir að skýra þurfi markmið sóttvarnaaðgerða og auka fyrirsjáanleika. Orðrétt segir um þetta í greinargerð frá hópnum:

„Dragist óvissa á langinn getur það haft alvarleg og langvarandi áhrif. Stjórnvöld gegna að mati hópsins lykilhlutverki í að sporna gegn frekara tjóni, t.d. með því að dreifa byrðum áfallsins, skapa skilyrði til að fullnýta framleiðsluþætti þegar aðstæður leyfa, vernda samband atvinnurekenda og starfsfólks, standa vörð um viðskiptasambönd og tryggja að mikilvæg þekking og reynsla glatist ekki á meðan ástandið varir.

Ábendingar hópsins eru:

  • Að gagnlegt væri að útskýra markmið sóttvarnaaðgerða betur.
  • Til bóta væri að auka fyrirsjáanleika um sóttvarnaaðgerðir eftir því sem við verður komið.
  • Að skoða hvort aðrar sóttvarnaaðgerðir á landamærum séu mögulegar án þess að taka of mikla áhættu fyrir þróun faraldursins erlendis.
  • Að skoða gaumgæfilega leiðir til að veita ferðaþjónustu stuðning til að viðhalda reynslu, þekkingu og viðskiptasamböndum á meðan ástandið varir.“

 

Sjá nánar á vef Stjórnarráðs

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki