Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, varar landsmenn við að falla í beiskju eða leita að blórabögglum nú þegar grípa þarf til hertari samkomutakmarkana á ný vegna fjölgunar COVID-19 smita. Þetta kemur fram í stuttri tilkynningu á Facebook-síðu forsetaembættisins. Forsetinn brýnir landsmenn einnig til að sýna aðgát og skynsemi um helgina:
„Kæru landsmenn.
Á hádegi á morgun ganga í gildi nýjar og hertar reglur á mannamótum, til varnar veirunni skæðu. Ég hvet ykkur öll til að kynna ykkur þær á heimasíðunni www.covid.is og www.covid.is/tilkynningar. Ég hvet fólk líka til að sýna áfram seiglu og samstöðu í glímu okkar við vágestinn. Beiskja eða leit að blóraböggli gagnast engum í miðjum klíðum og takist okkur vel upp núna er von til þess að unnt verði að létta þessum hömlum við fyrstu hentugleika.
Ný fyrirmæli hafa að sjálfsögðu áhrif á fundi og aðra viðburði sem tengjast forsetaembættinu. Innsetningarathöfn 1. ágúst verður þannig með allt öðru og minna sniði en venja er.
Við erum öll almannavarnir og þetta er ekki innantómur frasi. Höldum áfram að þvo okkur vel um hendur, virðum tveggja metra mannhelgi utan heimilisins og notum andlitsgrímur eins og þörf krefur.
Sýnum líka aðgát og skynsemi um helgina. Því færri og minni sem fjöldasamkomurnar verða núna, því minni verða líkurnar á hópsmitum og vandræðum við að leita uppruna þeirra. Verum hluti lausnarinnar en ekki vandans.“