Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur, fjallar um framboðsmál flokkanna í pistlum sínum í DV þessar vikurnar. Í nýjasta pistlinum er velt upp mögulegum þingmannsefnum Sjálfstæðisflokks og fjallað um stöðu flokksins almennt í einstökum kjördæmum. Þegar kemur að Suðurkjördæmi segir meðal annars:
„Ásmundur Friðriksson og Vilhjálmur Árnason munu báðir ætla sér fram og enn á ný heyrist nafn Elliða Vignissonar nefnt sem mögulegs frambjóðanda í oddvitasætið. Þá þykir afar líklegt að Unnur Brá Konráðsdóttir reyni aftur fyrir sér í kjördæminu og stefni þá á fyrsta eða annað sætið. Heimildarmönnum í kjördæminu ber þó saman um að hún muni eiga á brattann að sækja. Unnur Brá var í öðru sæti á lista flokksins fyrir kosningarnar 2013 en féll niður í fjórða sætið fyrir kosningarnar 2016. Það sæti dugði henni ekki til endurkjörs 2017. Ýmsir hafa nefnt að hún ætti meiri möguleika á kjöri í Reykjavík þrátt fyrir að hafa verið sveitarstjóri í Rangárþingi eystra. Viðhorf hennar, meðal annars í innflytjendamálum, eigi meiri hljómgrunn í þéttbýlinu en í Suðurkjördæmi.“
Og í Kraganum er líka velt upp nöfnum:
„Ýmsir viðmælenda nefna Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra í Hafnarfirði, sem þingmannsefni og enn fleiri Karen Halldórsdóttur, bæjarfulltrúa í Kópavogi. Þar sem miðaldra karlar setja á feti fyrir eru miklu meiri möguleikar fyrir nýjar konur að komast að.
Vilhjálmur Bjarnason hyggst aftur gefa kost á sér en hann féll út af þingi 2017. Hann er talsvert eldri en flestir þingmenn flokksins og gæti þannig „breikkað ásýndina“ eins og stundum er komist að orði.“
Meira um málið í nýjasta DV.