fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Fangar styðja frumvarp Pírata

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 29. júní 2020 08:42

Halldóra Mogensen.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Afstaða, félag fanga á Íslandi, lýsir yfir stuðningi við frumvarp Pírata um afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefnaneytenda í yfirlýsingu.

Vill félagið að frumvarpið nái einnig yfir lyfseðilskyld lyf.

Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér að neðan:

 

Almannahagsmunir krefjast afglæpavæðingu neysluskammta

Afstaða, félag fanga, tekur undir afstöðu Rauða krossins, sem birtist í Fréttablaðinu í dag, varðandi frumvarp um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni sem felur í sér afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefnaneytenda. Afstaða lýsir yfir afdráttarlausum stuðningi við frumvarpið og telur það spor í rétta átt við að auka möguleika fíkla á að takast á við vanda sinn. Afstaða tekur einnig undir það að ganga megi lengra og láta frumvarpið ná til lyfseðilsskyld lyf.

Afstaða telur að refsing í formi sekta auki lýkur að því að neytendur fíkniefna festast í viðjum neyslu sinnar til langframa. Í fjölmörgum tilvikum er helstu skuldir fíkla fólgnar í sektum sem fara til innheimtu hjá Sýslmanninum á Blönduósi. Fíklar geta ekki greitt sektirnar en þær fyrnast á 4 árum. Greiðist sektirnar ekki innan fyrningarfrests kemur til vararefsingar og þurfa fíklar að afplána þær. Í fyrstu kemur til samfélagsþjónustu en þegar fram lýða stundir eru vímuefndaneytendurnir boðaðir í afplánun í fangelsi. Sektarferlið og fullnusta sekta tekur 4 ár. Á þeim tíma er það vel þekkt að fíklar sjái ekki tilganginn í að hætta neyslu.

Það verður varla séð hvernig varnaðaráhrif refsinga vegna neysluskammta geti verið til staðar. Þvert á móti telur Afstaða að slík refsing auki líkur að frekari neyslu. Vímuefnaneytandi hefur ekki þann ásetning að brjóta gegn refsilögum heldur er hann í sjúklegu ástandi sem kallar á neyslu fíkniefna. Um er að ræða andlegan-, líkamlegan- og félagslegan sjúkdóm sem verður ekki kveðinn niður með refsingum. Refsingin eykur eingöngu á hinn félagslega vanda sem er ein af meginorsökum neyslunnar. Refsing vegna neysluskammta getur þannig orðið ein helsta orsök neyslunnar og því má fullyrða að fælingarmáttur refsiákvæða um neysluskammta sé enginn, þvert á móti. Refsing ýtir undir neyslu.

Með varnaðaráhrif refsinga vegna neysluskammta í huga vill Afstaða benda á tilgangsleysið sem felst í því að rannsaka slík brot vímuefnaneytenda og kostnaðinn sem því fylgir. Mikill tími lögreglu fer í rannsókn sem betur væri varið í þarfari verk. Málinu lýkur ekkert endilega hjá lögreglu enda eiga allir sakborningar rétt á verjanda og því að mál þeirra séu borin undir dómstóla. Þeim mikla tíma og fjármunum sem fer í dómsmeðferð væri líka betur varið í annað.

Þá vill Afstaða benda á það að íslenska fangelsiskerfið er lögnu sprungið og í loft upp við Covid-faraldurinn. Biðlistar í fangelsi lengjast stöðugt en á þeim lista er fjölmennur hópur fólks sem býður afplánunar vararefsingar vegna sektardóma. Með öllu er tilgangslaust að fangelsa það fólk enda er það fast í viðjum sjúkdóms sem fangelsi læknar ekki. Þessi aðferð er nánast innheimtuaðferð sem endar með því að ríkið tapar sektinni og leggur út í aukakostnað við fangavist svo milljónatugum skiptir.

Afstaða minnir á að Landspítalinn rekur sérstaka deild sem meðhöndlar fíknisjúkdóma. Sú deild er kostuð af hinu opinbera en fjármunirnir koma frá almenningi. Afstaða telur það almennt viðurkennt að fíklar þurfi á meðferð og uppbyggingarúrræðum að halda til að sigrast á vanda sínum. Með það í huga telur félagið því að refsingar fíkla vegna vímuefnanotkunar séu tvíræð þversögn. Ríkisvaldið skapar skuldavanda og kostar miklum fjármunum til við að senda fíkla í fangelsi. Skilda ríkisins er miklu fremur sú að meðhöndla fíkla með þeim aðferðum sem skila tilætluðum markmiðum og m.a. er unnið að á Landspítala. Minnt er á að fangelsi eru gróðrarstía fíkniefnaneyslu og efla fíkla í neyslunni.

Að lokum vill Afstaða taka það fram að refsingar sjúklinga vegna sjúkdóms síns auka vandann. Slík refsiúrræði eru því til þess fallin að skapa vantrú almennings á réttarkerfinu og árangri þess. Það eru því mikilvægir almannahagsmunir sem krefjast þess að frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta nái fram að ganga.

F.h. Afstöðu, félags fanga á Íslandi,

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þykir miður að kaupin á TM hafi orðið umdeild

Þykir miður að kaupin á TM hafi orðið umdeild
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“