fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Forsetaframbjóðendur fá stuðning landsþekktra Íslendinga

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 26. júní 2020 13:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun eru forsetakosningar þar sem kosið er á milli sitjandi forseta, Guðna Th. Jóhannessonar og Guðmundar Franklíns Jónssonar.

Vísindalegar og marktækar kannanir benda til þess að Guðni muni fara með afgerandi sigur af hólmi, að hann fái um og yfir 90% atkvæða, en Guðmundur Franklín um 10%.

Verður því forvitnilegt að sjá hvað kemur upp úr kjörkössunum á morgun.

Ísdrottningin og Samfylkingin

Þó varast skuli að taka mark á umfangi stuðnings á samfélagsmiðlum, er oft forvitnilegt að sjá hvaða afstöðu fólk sem hefur verið í kastljósi fjölmiðlanna tekur, þegar kemur að stjórnmálum og kosningum.

Samkvæmt algerlega óvísindalegri samantekt Eyjunnar, sem byggir á rennsli yfir stuðningssíður framboðanna, samfélagsmiðla og fréttamiðla á liðnum dögum, virðist vera að landsþekktir Íslendingar kjósi flestir að halda skoðunum sínum varðandi forsetakosningarnar út af fyrir sig.

Hinsvegar eru þó sumir sem styðja við sinn mann opinberlega. Í stuðningsliði Guðna forseta eru stjórnmálamenn Samfylkingarinnar, fyrr og síðar, nokkuð áberandi, en athygli vekur að Ásdís Rán Gunnarsdóttir, sjálf Ísdrottningin, styður Guðmund Franklín.

Hér er að neðan má sjá nokkra sem flokkast mætti undir þekkta eða fræga, sem tekið hafa opinbera afstöðu.

Athugið að ekki er um tæmandi lista að ræða og notast er við nokkuð víða skilgreiningu á hugtakinu þekktur eða frægur.

Þeir sem stutt hafa Guðmund Franklín Jónsson

  • Ásdís Rán Gunnarsdóttir (Ísdrottningin), fyrirsæta og samfélagsmiðlastjarna
  • Bæring Ólafsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og forstjóri Coca Cola International
  • Sturla Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og vörubílstjóri
  • Gunnlaugur Jónsson, formaður Frelsisflokksins
  • Helgi Helgason, formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar

Ásdís Rán, einnig þekkt sem Ísdrottningin, styður sinn mann Guðmund.

Þeir sem stutt hafa Guðna

  • Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar
  • Bubbi Morthens, tónlistarmaður
  • Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður
  • Edda Björgvinsdóttir, leikkona
  • Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar
  • Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins
  • Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar
  • Friðjón R. Friðjónsson, almannatengill og eigandi KOM
  • Sveinn Valgeirsson, dómkirkjuprestur
  • Ólína Þorvarðardóttir, rithöfundur/fræðimaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar
  • Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar
  • Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi ráðherra VG
  • Eiríkur Jónsson, fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands
  • Einar Bárðarson, almannatengill, athafnamaður og plokkari
  • Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur
  • Eiríkur Rögnvaldsson, íslenskuprófessor
  • Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar
  • Anna Kristjánsdóttir, vélstjóri og frumkvöðull í réttindabaráttu transfólks

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun