

Viðar Guðjohnsen, lyfjafræðingur og sjálfstæðismaður gagnrýnir harðlega aðgerðir ríkisstjórnarinnar í Covid-19 faraldrinum, líkir þeim við stofufangelsi og gefur til kynna að þær ýti undir leti. Þetta kemur fram í pistli hans í Morgunblaðinu í dag.
Eldri borgarar í stofufangelsi
Viðar víkur fyrst að hörðum aðgerðum í málefnum eldri borgara sem hafi í reynd verið skikkaðir mánuðum saman í eins konar stofufangelsi.
„Þetta ástand sem elsta og besta kynslóðin hefur upplifað í tvo mánuði er ekkert annað en stofufangelsi og það hreinlega má ekki horfa framhjá þeirri staðreynd þegar raddir um upprisu massatúrisma og opnun landamæra verða sífellt háværari. Þeir sem tala með slíkum hætti eru í raun að segja að frelsi túrista til þess að heimsækja Ísland sé mikilvægara en frelsi eldri og viðkvæmari kynslóða þjóðarinnar til þess að hitta ástvini og lifa eðlilegu lífi á þeim eina stað í veröldinni sem þeir geta kallað heimili. […] Mér var kennt sem krakki að þegar saklaus er dæmdur í fangelsi kallast slíkt dómsmorð.“
Litla gula hænan
Viðar horfir einnig til þess að aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að styðja við atvinnulífið og efnahaginn í landinu í þessum faraldri þá gleymist það oft að einhver þurfi að borga brúsann að endingu.
Víðir tekur sem dæmi söguna um litlu gulu hænuna, sem enginn vildi hjálpa að baka brauð, en allir vildu njóta afrakstursins.
Hún lýsir grundvallar muninum á dugnaði annars vegar og leti hins vegar. Það vissi litla gula hænan að ef leti húsdýranna yrði verðlaunuð myndu þau missa sjálfsbjargarhvötina og því fengu húsdýrin aðeins að horfa á hænuna og unga hennar njóta
Viðir segir þessi saga lýsa grundvallar muni á viðhorfi manna. Nefnir hann þá frjálslynda íhaldsmenn, eða jafnaðarmenn sem hann vísar til sem kaloríulausu útgáfunnar af kommúnistum.
Kalóríulausa útgáfan af kommúnistanum er auðvitað jafnaðarmaðurinn líkt og spegilmyndin, hinn „frjálsi hægri krati“, sem þykist á hægri ásnum.
Síamstvíburar þessir skauta með fögrum orðum á milli þess sem þeir kalla sósíalisma eða líberalisma; ástands sem lýsir sér í allsherjar hentisemi enda vilja báðir auðvitað geta keypt sér flott föt, rafbíla og dýra kampavínið en samt á tyllidögum krafist andlitsfarða hinna góðu.
Einhver þarf að borga
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar ali á leti og eyðileggi hinn innri dugnað sem blundi í flestum og á endanum þurfi einhver að borga brúsan þar sem ríkissjóður sé ekki ótæmandi og hið opinbera skapi ekki verðmæti.
„Hér í borginni virðast verktakar stýra för og mjög einföld verk kosta mjög háar upphæðir, sbr. breytingar á Grensásvegi og Hofsvallagötu yfir í kemst-varla-götur. Bragginn margumtalaði opinberaði nánast sjálftöku á almannafé. Sagan endalausa við holuviðgerðir og gatnagerðarfúsk eru önnur dæmi. Toppur ísjakans líklega.
Þótt ríkissjóður sé rekinn betur en borgarsjóður er ekki hægt annað en að gagnrýna fjárausturinn í kringum viðbrögðin við Covid-19 enda mun einhver þurfa að borga þau ósköp“