Kolbrún Dögg Arnardóttir, sem meðal annars stofnaði herferðina #Aldreiaftur, birti í kvöld færslu á Facebook þar sem hún fór yfir vankanta þess að vera í bakvarðarsveit. Hún lýsir stöðunni sem neyðarástandi vegna COVID-19 veirunnar
„Covid-19 neyðarástand- Bakvarðasveitin. Vá hvað ég er svekkt, enn á ný koma skerðingar í veg fyrir að að fólk geti hjálpað til þegar á reynir. Fjölskerðingarkerfið er REFSIVÖNDUR sem rígheldur fólki i sófanum.
Við hjónin ætluðum að leggja samfélaginu lið með því að vinna við aðhlynningu fatlaðra í gegnum Bakvarðarsveit Velferðarráðuneytisins.
Tryggingastofnun ríkisins er með sérstaka uppbót 33þ. á mán sem skerðist strax við fyrstu krónu þannig að eg þarf að borga hana afturvirkt til síðustu áramóta. 132þ. skert 65% þá þarf ég að borga til baka 85þ. Þá tekur við húsnæðisbótakerfið og skerðir frá heildarlaunum sem þíðir að þær lækka niður í 0kr.“
Kolbrún bendir á að ekki bæti úr skák að maðurinn hennar sé atvinnulaus og segir að sama hvaða leið sé farin þá þurfi þau að borga verulegar fjárhæðir.
Hún skorar að lokum á stjórnvöld að gera eitthvað í málinu.
„Ég skora á stjórnvöld að skoða sanngjarnari lausn svo að við sem heima sitjum og erum fær um rétta hjálparhönd getum það.“