fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Smálánafyrirtækin enn að brjóta lög með ólöglegum vöxtum – Kallað eftir aðgerðum stjórnvalda

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 3. febrúar 2020 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Neytendasamtökin kalla eftir aðgerðum í yfirlýsingu á vefsíðu sinni, þar sem smálánafyrirtækið Kredia er sagt bjóða upp á ólöglega vexti, sem og önnur smálánafyrirtæki.

Ný lög um neytendalán tóku gildi um áramót sem fólu meðal annars í sér að hámark árlegrar hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK) var lækkað úr 50% í 35%, auk stýrivaxta Seðlabanka Íslands:

„Í áraraðir hafa smálánafyrirtækin reynt að koma sér undan framangreindu hámarki með ýmsum leiðum s.s. flýtigjaldi, sölu rafbóka samhliða lánveitingum og flutning starfseminnar til annarra landa. Um mitt síðasta ár gaf Almenn innheimta ehf. það út að fyrirtækið myndi ekki lengur innheimta ólögmætar kröfur. Þó hefur innheimtukostnaður vegna ólögmætra lána ekki verið felldur niður,“

segir í yfirlýsingu Neytendasamtakanna.

Einbeittur brotavilji

Þá er greint frá því að þrátt fyrir lagabreytingarnar megi enn lesa á vef Kredia.is að enn sé innheimtur hærri vaxtakostnaður en löglegt er, en þar er enn miðað við 50 prósent.

„Þá bendir fljótleg yfirferð yfir vefsíður nokkurra annarra lánveitenda til þess að fleiri en Kredia veiti neytendalán á ólöglega háum vöxtum. Þá birta sumir lánveitendur jafnvel ekki upplýsingar um árlega hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK), eins og þeim er skylt samkvæmt lögum, og því er ómögulegt að vita raunverulegan kostnað lánanna nema eftir umsóknarferli.

Kallað eftir aðgerðum

Kalla Neytendasamtökin eftir aðgerðum stjórnvalda:

„Neytendasamtökin kalla eftir því að tafarlaust verði gripið til aðgerða stjórnvalda, svo ekki verði veitt dýrari lán en lög leyfa, nógu eru 35% vextir háir samt, þó ekki sé lengra seilst. Þá kalla Neytendasamtökin eftir því að allir lánveitendur birti þær upplýsingar sem þeim er skylt samkvæmt lögum, meðal annars um árlega hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK). Án upplýsinga um ÁHK er neytendum ógerlegt að bera saman raunverulegan kostnað lána og eftirlit með að fyrirtæki haldi sig innan ramma laganna hvað varðar hámark ÁHK gert erfiðara.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki